Golf

Valdís Þóra styrkti stöðu sína

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Valdís Þóra Jónsdóttir.
Valdís Þóra Jónsdóttir. vísir/gsí
Valdís Þóra Jónsdóttir lék mjög vel á þriðja hringnum á lokaúrtökumótinu fyrir Evrópumótaröð kvenna í golfi.

Skagakonan lék á 69 höggum í dag, þremur undir pari, og er á samtals fjórum höggum undir pari eftir fyrstu þrjá hringina. Hún er í 17.-21. sæti en 30 efstu eftir fimm hringi fá þátttökurétt á Evrópumótaröðinni.

Valdís Þóra var á pari eftir fyrri níu holurnar en byrjaði svo seinni níu með því að fá fugla á 10. og 11. holu. Hún fékk svo þriðja fuglinn á átjándu og síðustu holunni.

Hún er þremur höggum á undan kylfingunum sem eru í 28.-35. sæti og því í ágætri stöðu fyrir síðustu tvo keppnisdagana. Hringurinn í dag var hennar besti á mótinu til þessa.

Ólafía Þórunn Jónsdóttir komst í gegnum sama úrtökumót fyrir ári síðan en fyrr í mánuðinum vann hún sér þátttökurétt á bandarísku LPGA-atvinnumótaröðinni.


Tengdar fréttir

Valdís Þóra á parinu í Marokkó

Valdís Þóra Jónsdóttir úr golfklúbbnum Leyni á Akranesi byrjaði ágætlega á fyrsta keppnisdeginum á lokaúrtökumóti fyrir sterkustu atvinnumótaröð Evrópu í kvennaflokki.

Valdís svaf illa vegna láta í næturklúbbi

Þó að Valdís Þóra Jónsdóttir hafi fengið frekar lítinn svefn fyrir annan hringinn á lokaúrtökumótinu fyrir Evrópumótaröðina í Marokkó þá spilaði hún mjög vel í gær.

Valdís enn í fínum málum

Valdís Þóra Jónsdóttir úr golfklúbbnum Leyni á Akranesi spilaði fínt golf á öðrum keppnisdegi á fyrsta á lokaúrtökumóti fyrir sterkustu atvinnumótaröð Evrópu í kvennaflokki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×