Golf

Valdís Þóra byrjaði á skramba en er samt í 15. sæti

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Valdís Þóra Jónsdóttir.
Valdís Þóra Jónsdóttir. Mynd/Golfsamband Íslands
Valdís Þóra Jónsdóttir hóf í dag keppni á fyrsta stigi úrtökumótsins fyrir LET Evrópumótaröðina en úrtökumótin fara fram í Marokkó.

Fall er vonandi fararheill fyrir Valdísi Þóru sem er að reyna að komast á lokaúrtökumótið sem fram fer í Marokkó 17.til 21. desember.

Hún fékk nefnilega skramba á fyrstu holu þegar hún lék þessa par fjögur holu á sex höggum. Valdís Þóra tapaði síðan höggi líka á holu tvö og var því komin þrjú högg yfir par eftir aðeins tvær holur.

Hún lét þessa slæmu byrjun þó ekki slá sig útaf laginu. Valdís Þóra lék hinar sextán holurnar á hringnum á einu höggi yfir par þar sem hún fékk meðal annars þrjá fugla.

Valdís Þóra spilaði fyrsta hringinn á samtals 76 höggum eða fjórum höggum yfir pari.

Hún er í 15. til 20. sæti. Það komast á bilinu 27 til 28 keppendur áfram af fyrsta stiginu inn á lokaúrtökumótið.

Aðeins sex kylfingar náðu að spila fyrsta hringinn á pari eða betur og golfvöllurinn í Marokkó er greinilega mjög krefjandi.

Valdís er með heimamann sem aðstoðarmann í mótinu en hún er ánægð með samstarfið ef marka má viðtal við hana á heimasíðu Golfsambands Íslands.

„Hann heitir Múhammeð og er algjör dúlla. Hann var með mér á æfingahringnum og stóð sig vel. Gerði allt sem ég vil að aðstoðarmenn eiga að gera, toppkall hann Múhammeð,“ sagði Valdís Þóra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×