Golf

Valdís Þóra: Fjöldi fylgjenda á samfélagsmiðlum skiptir styrktaraðila miklu máli

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Valdís Þóra Jónsdóttir.
Valdís Þóra Jónsdóttir.
Valdís Þóra Jónsdóttir, kylfingur frá Akranesi, vann sér inn keppnisrétt á Evrópumótaröðinni undir lok síðasta árs á eftirminnilegan hátt. Hennar fyrsta mót verður í Ástralíu í byrjun næsta mánaðar.

„Ég er mjög spennt. Ég legg af stað í tveggja daga ferðalag á föstudaginn í næstu viku og þá fer þetta allt af stað,“ sagði Valdís Þóra en hún var gestur í myndveri í útsendingu Golfstöðvarinnar frá fyrsta keppnisdegi Ólafíu Þórunnar Kristinsdóttur á LPGA-mótaröðinni.

Sjá einnig: Frábær fyrsti hringur hjá Ólafíu Þórunni

Valdís Þóra hélt til Spánar í upphafi ársins til að hefja æfingar á grasi, sem að vísu gekk ekki eftir vegna slæms veðurfars. En þar sótti hún einnig kynningu fyrir nýliða á Evrópumótaröðinni.

„Þar var farið yfir ýmsa hluti. Til dæmis fjármálin og hvernig eigi að ræða við styrktaraðila. Það var líka verið að fjalla um samfélagsmiðla sem hafa svo mikil áhrif. Styrktaraðilar á mótum eru mikið að spá í hversu marga fylgjendur kylfingar eru með á Instagram og þess háttar,“ útskýrði Valdís Þóra.

„Maður þarf því að byggja upp mikinn grunn þar. Það er í raun hellingsvina. Ég var að lesa mig til um bestu leiðirnar til að gera það og þetta er margra tíma vinna á hverjum degi.“

Áður hafa fjölmiðlar víða um heim fjallað um áhrif samfélagsmiðla og hvernig vinsældir kvenkylfinga þar hafa áhrif á stöðu þeirra innan íþróttarinnar. Paige Spiranac, 23 ára kylfingur frá Bandaríkjunum, greindi til að mynda frá einelti sem hún fékk í netheimum vegna þátttöku hennar á sterku móti í fyrra.

Sjá einnig: Brotnaði niður vegna nettrölla: „Heimurinn sagður betri ef ég myndi deyja“

Valdís Þóra er einn fimm íslenskra afrekskylfinga sem eru styrktir af afrekssjóðnum Forskoti. Hún er þakklát fyrir þann stuðning en segir ljóst að meira þurfi til að stundað sína íþrótt af fremsta megni og lifað eðlilegu lífi á meðan.

Viðtalið við hana má sjá í heild sinni efst í fréttinni.


Tengdar fréttir

Ég þurfti aðeins að sanna mig

Skagakonan Valdís Þóra Jónsdóttir náði þeim merka áfanga að verða aðeins fjórði kylfingurinn frá Íslandi sem kemst inn á Evrópumótaröðina í golfi. Hún hefur unnið mikið með íþróttasálfræðingi og segist ekki vera lakari kylfingur en Ólafía Þórunn Kristinsdóttir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×