Golf

Valdís aðeins einu högg frá efsta sætinu | Náði sínum besta árangri

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Valdís Þóra Jónsdóttir úr Leyni
Valdís Þóra Jónsdóttir úr Leyni Mynd/Golfsamband Íslands
Kylfingurinn Valdís Þóra Jónsdóttir úr Leyni náði sínum besta árangri á næststerkustu atvinnumótaröð Evrópu sem lauk á Spáni í dag. Valdís endaði í þriðja sæti á þremur höggum undir pari vallar og var hún aðeins einu höggi frá efsta sætinu. Ólafía Þórunn Kristinsdóttir úr GR endaði í 23. sæti á +2 samtals.

Þetta er fyrsta mótið hjá Valdísi á þessu tímabili á LET Access mótaröðinni. Valdís Þóra fór í aðgerð í byrjun febrúar vegna álagsmeiðsla í þumalfingri og hefur hún verið í endurhæfingu frá þeim tíma.

Valdís Þóra lék á 133 höggum, var tveimur undir pari á fyrsta hring og einu höggi undir pari á öðrum hring. Valdís náði 9 fuglum á þessum 36 holum og var á parinu á 22 holum.

Ólafía hefur leikið á tveimur mótum nú þegar á þessari mótaröð og á einu móti á LET Evrópumótaröðinni, sterkustu mótaröð Evrópu, þar sem hún er með keppnisrétt.

Aðstæður á keppnisvellinum voru erfiðar vegna mikillar úrkomu undanfarna daga og vikur. Breyta þurfti nokkrum holum úr par 4 í par 3 vegna þess að brautirnar voru óleikhæfar. Par vallarins var því 68 högg sem er óvenjulegt.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×