Innlent

Undanþága Jóns á við tvær góðar kýr utan kvóta

Þorbjörn Þórðarson skrifar

Samkeppniseftirlitið er harðort í umsögn sinni á mjólkurfrumvarpi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, eins og fréttastofa hefur fjallað um. Eftirlitið telur að íslenskur mjólkurmarkaður hafi mörg einkenni samráðshrings, cartel á enska tungu, og telur frumvarpið styrkja slíkt samráð.

Þó sér eftirlitið ástæðu í lok umsagnar sinnar nefna jákvæðan flöt í frumvarpinu er snýr að undanþágu til handa þeim sem framleiða mjólkurafurðir beint frá býli. Með frumvarpinu er lagt til að það megi markaðsfæra tíu þúsund lítra til heimavinnslu, það var óheimilt áður. Sjávarútvegs og landbúnaðarnefnd lagði síðan til að þessi lítrafjöldi yrði hækkaður í fimmtán þúsund lítra.

Fréttastofa kannaði hjá Bændasamtökunum hversu mikið þetta væri í framleiðslu. Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir, nautagriparæktarráðunautur samtakanna, segir að meðalkýrin mjólki fimm þúsund og þrjú hundruð lítra af mjólk á ári. Góð mjólkurkýr framleiði sjö til níu þúsund, en í þessu samhengi má benda á að samkvæmt tölfræði samtakanna er skilaði afurðahæsta mjólkurkýrin á þessu ári hvorki fleiri né færri en 16 þúsund lítrum.

Það má því segja, miðað við þessar tölur, að frumvarp Jóns Bjarnasonar, geri ráð fyrir undanþágu sem nái til tveggja góðra mjókurkúa. Undanþágan tekur aðeins til heimaframleiðslu, þannig að hún nær aðeins til þeirra sem framleiða beint frá býlum.

Steingrímur J. Sigfússon sagði í gær eftir ríkisstjórnarfund um undanþáguna: „Í frumvarpinu er verið að auka samkeppni um leið með því að heimila bændum að markaðssetja beint frá býli allt að tíu þúsund lítrum af umframframleiðslu, en það er þó samkeppni sem kemur neðan frá, beint frá býlunum."

Samkvæmt upplýsingum frá Bændasamtökunum eru aðeins þrír bændur sem vitað er um að stundi heimaframleiðslu á ís, en auk þeirra framleiða nokkrir osta, en vaxandi áhugi er þó á þessu, samkvæmt upplýsingum þaðan.




Tengdar fréttir

Ungir bændur ánægðir með Jón

Stjórn Samtaka ungra bænda fagnar frumvarpi sem Jón Bjarnason sjávarútvegs og landbúnaðarráðherra hefur lagt fram um breytingar á búvörulögum og telur stjórn Samtaka ungra bænda að fyrirhugaðar breytingar á búvörulögum verði til þess fallnar að styrkja grundvöll mjólkurframleiðslu í hinum dreifðu byggðum landsins.

Þingmaður Framsóknar: Ekkert nýtt í umsögn Samkeppniseftirlitsins

Fulltrúi Framsóknarflokks í landbúnaðarnefnd segir ekkert nýtt í umsögn Samkeppniseftirlitsins um mjólkurfrumvarp landbúnaðarráðherra, en eftirlitið gerir alvarlegar athugasemdir við frumvarpið. Hann segir að reglur þurfi að gilda um markaðinn og óheft samkeppni og markaðshyggja hafi ekki farið vel með Vesturlönd.

Vinnur gegn hagsmunum bænda og neytenda

Neytendasamtökin fullyrða að mjólkurfrumvarp landbúnaðarráðherra vinni gegn hagsmunum bænda og neytenda. Verði frumvarpið samþykkt verður einokun fest í sessi að mati samtakanna og því vilja þau að frumvarpið verði fellt á Alþingi.

Sjálfstæðismenn styðja mjólkurfrumvarp

Annar fulltrúa Sjálfstæðisflokks í landbúnaðarnefnd segist standa við stuðning sinn við mjólkurfrumvarp landbúnaðarráðherra, en hinn segir gagnrýni á frumvarpið sem fram hefur komið ekki eiga rétt á sér. Báðir eru þeir þó sammála um að landbúnaðarnefnd þurfi að fara yfir málið í ljósi gagnrýninnar og útiloka ekki að frumvarpið taki breytingum.

Á móti mjólkurfrumvarpi Jóns

Frjálshyggjufélagið legst eindregið gegn frumvarpi Jóns Bjarnasonar landbúnaðarráðherra um að refsa beri afurðastöðvum, sem kaupa mjólk, sem er farmleidd er án ríkisstyrkja. Í ályktun félagsins segir enn fremur að hér sé á ferðinni gróf aðför að atvinnufrelsi í landinu og til þess ætluð að vernda einokun og fákeppni gamla tímans.

Einokun fest í sessi

Með mjólkurfrumvarpi landbúnaðarráðherra verður einokun fest í sessi þar sem nær útilokað verður fyrir nýja aðila að hefja starfsemi með úrvinnslu á mjólkurafurðum. Þetta er mat Samtaka verslunar og þjónustu en samtökin gera alvarlegar gera athugasemdir í umsögn við frumvarpið.

Ráðherra greinir á um ágæti mjólkurfrumvarps

Fjármálaráðherra segist ósammála Samkeppniseftirlitinu um að mjólkurfrumvarp landbúnaðarráðherra sé skaðlegt samkeppni. Þá greinir efnahags- og viðskiptaráðherra og fjármálaráðherra á um kosti frumvarpsins, en sá fyrrnefndi er sammála sjónarmiðum Samkeppniseftirlitsins.

Ýtir undir nýsköpun og skerpir núgildandi lög

Formaður Bændasamtakanna fagnar nýju mjólkurfrumvarpi. Hann segir að mjólkursamlögum sé þegar bannað að taka við mjólk frá framleiðendum umfram kvóta til sölu. Nú sé verið að skerpa á löggjöfinni hvernig taka eigi á þeim sem brjóta lögin.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×