Körfubolti

Umfjöllun og viðtöl: Ísland - Kýpur 84-62 | Sannfærandi í seinni hálfleik í Höllinni

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Hlynur Bæringsson sækir að körfu Kýpverja. Hann var besti maður vallarins í kvöld.
Hlynur Bæringsson sækir að körfu Kýpverja. Hann var besti maður vallarins í kvöld. vísir/anton
Strákarnir okkar í karlalandsliðinu í körfubolta unnu sannfærandi sigur á Kýpverjum 84-62 í undankeppni Evrópumótsins í Laugardalshöll í kvöld. Okkar menn voru allan fyrri hálfleikinn að hita upp en rúlluðu svo yfir gestina í síðari hálfleik þegar hlutirnir fóru að ganga upp.

Hittni Kýpverja fyrir utan þriggja stiga línuna hélt þeim inni í leiknum framan af en frábær varnarleikur okkar manna í þriðja leikhluta, og sóknin sömuleiðis, breytti öllu til hins betra. Ísland hefur nú sigraði í þremur leikjum af fimm í undankeppninni.

Sigurinn þýðir að okkar menn eiga góða möguleika á að komast í úrslitakeppni EM næsta sumar sem eitt af liðunum í öðru sæti riðils með bestan árangur. Belgar eru búnir að vinna riðilinn en með sigri á Belgum ætti Ísland að komast áfram í öðru sæti.

Riðlarnir eru sjö og komast efstu liðin í riðlunum beint á EM auk þeirra fjögurra sem eru með bestan árangur í öðru sæti. Í þeim samanburði eru ekki tekin með úrslit gegn liðinu sem hafnar í neðsta sæti riðilsins þar sem nokkrir riðlar eru bara með þremur liðum. Best væri fyrir íslenska liðið að Kýpur sigraði Sviss í hinum leik riðilsins á laugardag því þá væri Ísland með þrjá sigra í öðru sæti takist liðinu að vinna sigur á Belgum. Sigri Svisslendingar Kýpur og Íslendingar tapa gegn Belgum þá er vonin lítil.

Stigin dreifðust nokkuð jafnt hjá okkar mönnum í dag. Hlynur Bæringsson skoraði átján stig og tók níu fráköst í sínum 102. landsleik. Kristófer Acox átti sömuleiðis mjög góðan leik með tíu stig og flotta frammistöðu í frákastabaráttunni, þrjú sóknar- og fjögur varnarfráköst. Þá var Haukur Helgi Pálsson með 15 stig og sex fráköst.

Um sextán hundruð manns mættu í Höllina í kvöld þar sem „Ég er kominn heim“ hljómaði fyrir leik og áhorfendur minntu á sig með víkingaklappinu. Stemningin var góð og náði hápunkti þegar Kristófer Acox tróð með tilþrifum seint í fyrri hálfleiknum. Greinilegt er að Kristófer er í miklu uppáhaldi meðal stuðningsmanna sem fögnuðu vel í hvert skipti sem hann fór inná, útaf eða sýndi flott tilþrif á vellinum.

Fagnaðarefni er að Haukur Helgi og Jón Arnór Stefánsson spiluðu báðir um 25 mínútur en heilsa þeirra var áhyggjuefni í aðdraganda leiksins. Þeir ættu að geta verið klárir í leikinn á laugardaginn.

Ástæða er til að hvetja landsmenn til að fjárfesta tímanlega í miða á leikinn gegn Belgum á laugardaginn. Hann hefst klukkan 16 og góðar líkur á að það verði uppselt.

Hlynur Bærings: Fannst þeir ekki í rosalega góðu formi

Hlynur Bæringsson spilaði sinn 102. landsleik í 84-62 sigri á Kýpverjum fyrir framan 1600 manns í Laugardalshöll í kvöld. Hann var besti maður vallarins með 18 stig og níu fráköst.

Leikur liðsins gekk ekki vel framan af en okkar menn leiddu þó í hálleik 42-36.

„Við spiluðum mjög vel í þriðja leikhluta og fram í lok fjórða. Við erum svo óvanir því, margir hverjir á ferlinum, að vera fyrir fram líklegri. En það reddaðist í seinni hálfleiknum,“ sagði Hlynur.

Leikmenn skiptu mínútunum nokkuð vel á milli sín í leiknum í kvöld.

Frábær hittni

„„Við fengum mikið af bekknum í dag,“ sagði Hlynur. „Við náðum að keyra upp leikinn sem var ástæðan fyrir því að þeir urðu bara þreyttir í seinni hálfleik. Mér fannst þeir ekkert í rosalega góðu formi.“

Hlynur hefur verið að hitta vel fyrir utan þriggja stiga línuna í undankeppninni en vítanýtingin verið verri, reyndar þangað til í kvöld. Sumir hafa haft á orði að Hlynur væri orðinn hittnari fyrir utan þriggja stiga.

„Það er bara alveg rétt, þessa dagana. Það er yfirleitt ekki þannig en í þessari keppni hefur það verið þannig. Eigum við ekki heldur að reyna að halda hinu við og bæta vítin,“ sagði Hlynur sem setti sjö af níu vítum, fimm af sex í málningunni og tvö af þremur þriggja stiga skotum sínum. Nýtingin verður ekki mikið betri.

Ætlar í 200 landsleiki

Guðmundur Bragason afhenti Hlynur gullúr frá KKÍ fyrir leik í tilefni þess að Hlynur rauf 100 landsleikja múrinn. Guðmundur spilaði 169 landsleik þannig að nú munar 67 landsleikjum en Hlynur er á 34. aldursári. Getur hann náð Guðmundi?

„Eiginlega eina spurningin er hvort ég nái 200 eða ekki. Ég held ég eigi eftir að eiga alveg stórleik í 200. landsleiknum. Mig grunar það.“

Hlynur þakkaði áhorfendum frábæran stuðning í kvöld og sagði það virkilega gaman að stemning á leikjum liðsins virðist vera orðin að reglu. Okkar menn mæta Belgum í Höllinni klukkan 16 á laugardaginn.

Kristófer Acox fór á kostum með íslenska liðinu í kvöld.vísir/Anton brink
Kristófer: „Ég tala alltaf um að vera skrímsli“

Kristófer Acox heillaði áhorfendur í Laugardalshöllinni í kvöld með flottri frammistöðu í 84-62 sigri á Kýpverjum. Kristófer var heilt yfir sáttur með eigin leik og liðsins í heild þar sem margir lögðu hönd á plóg.

Kristófer vekur jafnan athygli fyrir mikla baráttu og jafnvel læti á gólifnu sem virtist fara vel í áhorfendur í Höllinni í kvöld.

„Ég tala alltaf um að vera brjálaður, að vera skrímsli. Ég reyni eins og ég get að vera það,“ sagði Kristófer. Hann segist ekki spá mikið í fagnaðarlátum fólksins í stúkunni en elski að spila fyrir fólkið sitt.

Kristófer gaf ekki kost á sér fyrir lokakeppnina í Berlín sumarið 2015 þar sem skólinn hans í Bandaríkjunum gaf ekki leyfi. Það hefur væntanlega verið grátlegt að missa af því ævintýri.

„Ég var bara að fylgjast með þessu í skólanum í tíma. Það er gaman að fá að taka þátt í svona alvöru verkefni núna og við verðum bara að fara alla leið.“

Kristófer, sem er uppalinn KR-ingur, hefur verið í háskólaboltanum vestanhafs í þrjú ár. Hann segir andann í íslenska liðinu mjög góðan.

„Ég held að þetta sé besti hópur sem ég hef verið með.  Við tengjum allir mjög vel saman og eins og við höfum þekkt hvern annan í mörg ár.“

Möguleikarnir á móti Belgum séu mjög góðir.

„Við töpuðum fyrir þeim úti svolítið stórt en munurinn er ekki svo mikill á liðinu. Ef við fáum góða stemningu og íslenska brjálæðið þá eigum við góðan séns.“

vísir/anton
vísir/anton
vísir/ernir
vísir/anton



Fleiri fréttir

Sjá meira


×