Íslenski boltinn

Umfjöllun: Eyjamenn unnu líka hitt Hafnarfjarðarliðið

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Tony Mawejje í leiknum í dag.
Tony Mawejje í leiknum í dag. Mynd/Stefán

ÍBV er komið á beinu brautina í Pepsi-deild karla eftir tvo sigra í röð og það báða á Hafnarfjarðarliðunum tveimur - FH og Haukum.

ÍBV vann í dag 3-0 útisigur á Haukum og er nú komið með sjö stig eftir fyrstu fjóra leikina sem allir hafa farið fram á útivelli.

Sigurinn í dag var þó ef til vill ekki alveg eins sannfærandi og tölurnar gefa til kynna. Eyjamenn byrjuðu þó vel og náðu 2-0 forystu strax um miðbik fyrri hálfleiksins með mörkum Matt Garner og Andra Ólafssonar.

Andri fékk svo tækifæri til að gera endanlega út um leikinn stuttu síðar en skalli hans hafnaði í slá Haukamarksins.

Eftir þetta drógu Eyjamenn mjög úr sóknarþunga sínum og Haukamenn komust betur inn í leikinn. Leikmenn ÍBV héldu þó áfram að beita skyndisóknum og áttu hættulegri færi en heimamenn.

En Haukarnir voru mun betri í síðari hálfleik en í þeim fyrri. Albert Sævarsson varði alls þrívegis í stöng í leiknum og virtist leikmönnum Hauka einfaldlega fyrirmunað að skora í leiknum.

Svo þegar að Eyþór Helgi Birgisson, sóknarmaður ÍBV, fékk að líta rauða spjaldið þegar um 20 mínútur voru til leiksloka var útlit fyrir að Haukar gætu látið til sín taka á lokamínútum leiksins. En annað kom á daginn.

Fimm mínútum síðar áttu Eyjamenn hraða og snotra sókn sem lauk með því að James Hurst átti sendingu inn á teig og náði Andri að skalla boltann í markið og gera þar með endanlega út um leikinn.

Heimamenn fengu þó sín tækifæri í leiknum og Eyjamenn mega þakka fyrir að þeir nýttu ekki eitthvað af þeim. Albert Sævarsson átti stórleik í marki ÍBV og varnarmennirnir virtust allir mjög sannfærandi.

Það virtist vanta talsvert upp á sjálfstraustið hjá Haukum eiga enn eftir að vinna sinn fyrsta sigur í Pepsi-deildinni. Þeir fengu færin en fóru afar illa að ráði sínu fyrir framan mark Eyjamanna.

Haukar - ÍBV 0-3

0-1 Matt Garner (17.)

0-2 Andri Ólafsson (19.)

0-3 Andri Ólafsson (74.)

Vodafone-völlurinn. Áhorfendur: 852

Dómari: Þorvaldur Árnason (7)

Skot (á mark): 14-12 (6-7)

Varin skot: Daði 4 - Albert 6

Hornspyrnur: 4-4

Aukaspyrnur fengnar: 13-16

Rangstöður: 1-3

Haukar (4-4-2):

Daði Lárusson 7

Þórhallur Dan Jóhansson 3

Kristján Ómar Björnsson 5

Guðmundur Viðar Mete 5

Pétur Ásbjörn Sæmundsson 3

(75. Kristján Óli Sigurðsson -)

Grétar Atli Grétarsson 4

(46. Úlfar Hrafn Pálsson 6)

Guðjón Pétur Lýðsson 5

Hilmar Trausti Arnarsson 5

Sam Mantom 5

Hilmar Geir Eiðsson 7

Hilmar Rafn Emilsson 4

(46. Jónmundur Grétarsson 5)

ÍBV (4-4-2):

Albert Sævarsson 8

James Hurst 7

Eiður Aron Sigurbjörnsson 7

Rasmus Christiansen 7

Matt Garner 7

Tony Mawejje 6

Andri Ólafsson 8 - maður leiksins

(77. Arnór Eyvar Ólafsson -)

Finnur Ólafsson 6

(81. Yngvi Borgþórsson -)

Þórarinn Ingi Valdimarsson 5

(61. Ásgeir Aron Ásgeirsson 6)

Tryggvi Guðmundsson 6

Eyþór Helgi Birgisson 6



Leiknum var lýst beint á Boltavaktinni en lýsinguna má lesa hér: Haukar - ÍBV.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×