Golf

Úlfar velur landsliðshópa

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Guðrún Brá Björgvinsdóttir er í landsliðinu sem tekur þátt á EM á heimavelli.
Guðrún Brá Björgvinsdóttir er í landsliðinu sem tekur þátt á EM á heimavelli. vísir/daníel
Úlfar Jónsson, landsliðsþjálfari í golfi, hefur valið þrjá landsliðshópa fyrir verkefni í næsta mánuði.

Úlfar valdi kvennalandsliðið sem keppir á EM landsliða sem fer fram á Urriðavelli dagana 5.-9. júlí.

Þrír kylfingar koma frá GR og þrír frá GK. Þetta eru þær Anna Sólveig Snorradóttir, Guðrún Brá Björgvinsdóttir og Signý Arnórsdóttir úr GK og Berglind Björnsdóttir, Ragnhildur Kristinsdóttir og Sunna Víðisdóttir úr GR.

Úlfar og Birgir Leifur Hafþórsson, aðstoðarlandsliðsþjálfari, völdu sex kylfinga í karlalandsliðið sem tekur þátt á EM landsliða í 2. deild í Lúxemborg dagana 6.-9. júlí.

Þetta eru þeir Andri Þór Björnsson, Guðmundur Ágúst Kristjánsson og Haraldur Franklín Magnús úr GR, Egill Ragnar Gunnarsson og Aron Snær Júlíusson úr GKG og Gísli Sveinbergsson úr GK.

Loks voru sex stúlkur valdar til að taka þátt á EM U-18 ára í Osló dagana 5.-9. júlí.

Þetta eru þær Elísabet Ágústsdóttir og Hulda Clara Gestsdóttir úr GKG, Eva Karen Björnsdóttir og Saga Traustadóttir úr GR, Zuzanna Korpak úr GS og Ólöf María Einarsdóttir úr GM.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×