Viðskipti erlent

Uber gert að greiða breskum bílstjórum sínum lágmarkslaun

Atli ísleifsson skrifar
Úrskurðurinn er talinn vera mikið áfall fyrir Uber, en um 40 þúsund bílstjórar starfa fyrir fyrirtækið í Englandi og Wales.
Úrskurðurinn er talinn vera mikið áfall fyrir Uber, en um 40 þúsund bílstjórar starfa fyrir fyrirtækið í Englandi og Wales. Vísir/Getty
Dómstóll í Bretlandi hefur úrskurðað að bílstjórar á vegum Uber verði skilgreindir sem starfsmenn fyrirtæksins í stað sjálfstætt starfandi.

Úrskurður dómstólsins þýðir að bílstjórarnir eigi rétt á launuðu sumarleyfi, lágmarkslaunum og fleiri fríðindum sem fylgja því að vera skilgreindir sem starfsmenn fyrirtækis.

Úrskurðurinn er talinn vera mikið áfall fyrir Uber, en um 40 þúsund bílstjórar starfa fyrir fyrirtækið í Englandi og Wales.

Í frétt Independent segir að Uber muni áfrýja málinu. Úrskurðurinn mun að öllum líkindum einnig hafa áhrif á starfsemi fleiri fyrirtækja með sambærileg viðskiptamódel.

Jo Bertram, framkvæmdastjóri Uber í Bretlandi, segir að tugþúsundir manna starfa fyrir Uber þar sem þeir vilja einmitt vera sjálfstætt starfandi og ráða sér sjálfir. „Yfirgnæfandi meirihluti bílstjóra sem nota Uber appið vilja halda frelsinu og sveigjanleikanum og keyra þegar og þar sem þeir vilja.“

Tveir starfsmenn Uber fóru með málið fyrir dóm þar sem þeir sögðu Uber stjórna vinnu þeirra, sem þýddi að þeir væru í raun starfsmenn fyrirtækisins. Þeir hefðu hins vegar engin réttindi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×