Viðskipti erlent

Twitter tekur á hefndarklámi

Samúel Karl Ólason skrifar
Hefndarklám hefur víða verið tekið hörðum tökum síðustu misseri.
Hefndarklám hefur víða verið tekið hörðum tökum síðustu misseri. Vísir/getty
Reglum samfélagsmiðilsins Twitter hefur verið breytt til að stöðva dreifingu hefndarkláms. Ekki er langt síðan Dick Costolo, framkvæmdastjóri Twitter, sagði að fyrirtækið hefði staðið sig ömurlega í að berjast gegn misnotkun og „tröllum“ á samfélagsmiðlinum.

Í reglum Twitter stendur nú að bannað sé að dreifa persónulegum myndum eða myndböndum sem voru teknar eða er dreift án samþykkis viðkomandi.

Lokað verður á notendur sem dreifa hefndarklámi og þeir beðnir um að fjarlæga efnið, annars eigi þeir ekki aftur snúið á Twitter. Þeir sem kvarta yfir birtingu þurfa að sanna hverjir þeir eru og að þeir hafi ekki gefið leyfi fyrir birtingu efnisins.

Á vef BBC kemur fram að víða er verið að taka hefndarklám og þá sem því dreifa hörðum tökum. Í Englandi og Wales getur hver sá sem dreifir hefndarklámi átt yfir höfði sér tveggja ára fangelsisvist. þá hefur hefndarklám verið gert refsivert í fjölda ríkja Bandaríkjanna.

Talsmaður Twitter segir að starfsmenn fyrirtækisins séu vongóðir á að hægt verði að bregðast við öllum tilkynningum innan skynsamlegs tímaramma. Breytingar verða gerðir á tölvukóðum samfélagsmiðilsins, svo að ekki verði hægt að birta myndir aftur sem hafi verið bannaðar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×