Viðskipti erlent

Toys R Us yfirgefur Times-torg í New York

Atli Ísleifsson skrifar
Verslunin stendur við 1514 Broadway, milli 44. og 45. strætis.
Verslunin stendur við 1514 Broadway, milli 44. og 45. strætis. Vísir/AFP
Bandaríska leikfangakeðjan Toys R Us mun brátt loka verslun sinni við Times-torg í New York.

NBC greinir frá því að Toys R Us hafi ákveðið að endurnýja ekki leigusamning sinn við 1514 Broadway, milli 44. og 45. strætis,  og gæti mögulega opnað nýja verslun í nágrenni torgsins.

Rýmið er um 10 þúsund fermetrar að stærð og hefur verslunin verið eitt helsta flaggskip Toys R Us síðustu árin, en hún opnaði í nóvember 2001.

Búist er við að rýmið verði skipt upp í nokkur smærri verslunarrými.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×