Handbolti

Þýskir fjölmiðlar: Dagur gæti hætt næsta sumar

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Dagur hefur náð frábærum árangri með þýska landsliðið.
Dagur hefur náð frábærum árangri með þýska landsliðið. vísir/getty
Þýskir fjölmiðlar fullyrða í dag að Dagur Sigurðsson gæti ákveðið að hætta sem landsliðsþjálfari Þýskalands næsta sumar.

Dagur tók við landsliði Þýskalands fyrir rúmum tveimur árum síðan en liðið hafði þá verið í mikilli lægð undanfarin ár. Hann kom liðinu í 8-liða úrslit HM 2015 í Katar og gerði það svo að Evrópumeisturum í upphafi ársins. Þýskaland vann svo til bronsverðlauna undir hans stjórn á Ólympíuleikunum í Ríó í sumar.

Það er þýska tímaritið Handball Inside sem greinir frá þessu. Samkvæmt heimildum blaðsins gera forráðamenn þýska handknattleikssambandsins ráð fyrir því að Dagur hætti starfi sínu sem landsliðsþjálfari í síðasta lagi næsta sumar.

Dagur er samningsbundinn þýska sambandinu fram yfir Ólympíuleikana í Tókýó árið 2020 en báðir aðilar eiga þann kost að segja honum upp fyrir 30. júní í sumar.

„Ég vil ekkert segja um þetta,“ sagði Mark Schober við fyrirspurn tímaritsins en Bob Hanning, varaforseti sambandsins og samstarfsmaður Dags til margra ára hjá Füchse Berlín, segir að sambandið eigi nú í viðræðum við Dag.

Dagur Sigurðsson og Bob Hanning.Vísir/Getty
„Það kemur ekki á óvart að Dagur sé einn eftirsóttasti þjálfari heims eftir Evrópumeistaratitilinn og bronsið í Ríó. Dagur veit hvar hann hefur þýska sambandið og öfugt. Það mun meira koma í ljós á næstu vikum,“ sagði Hanning.

Sjálfur sagði Dagur í samtali við Guðjón Guðmundsson, íþróttafréttamann 365, fyrir helgi að það væri klásúla í samningi hans um að aðilar myndu setjast niður á þessum tímapunkti. Þar gaf hann til kynna að önnur lið hefðu áhuga á honum, rétt eins og Hanning hefur gert í morgun.

Viðtal Gaupa við Dag má sjá hér að neðan.

„Þegar vel gengur þá er kroppað í mann úr ýmsum áttum. Það getur svo sem farið í allar áttir,“ sagði Dagur og bætti því við að starfið hafi ekki verið dans á rósum.

„Stundum væri ég feginn að vera í venjulegri 9-5 vinnu. Geta bara slökkt á símanum klukkan fimm. Það er ábyrgðarhlutur að vera með þýska landsliðið.“

Fram kemur í áðurnefndri grein Handball Inside að Dagur sé sigursælasti þjálfari þýska landsliðsins frá upphafi.


Tengdar fréttir

Ísland getur áfram verið í hópi tíu bestu

Dagur Sigurðsson hefur fulla trú á því að íslenska landsliðið geti komist í gegnum lægðina sem það er í og verið á meðal tíu bestu þjóða heims. Strákar hér heima þurfa að vera fullmótaðir áður en þeir fara út.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×