Erlent

Þrjú fötluð börn myrt

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
Myndin tengist fréttinni ekki beint.
Myndin tengist fréttinni ekki beint. vísir/afp
Fjögurra barna móðir hefur verið handtekin í Lundúnum, grunuð um að hafa myrt þrjú fötluð börn sín. Börnin fundust látin á heimili sínu í suðvesturhluta borgarinnar og eru sögð hafa þjáðst af erfðagalla sem takmarkaði hreyfigetu þeirra og lífsmöguleika.

Móðirin er 43 ára gömul og flutti hún inn í húsið ásamt eiginmanni sínum fyrir um það bil hálfu ári. Talið er að eiginmaður hennar og elsta barnið séu stödd erlendis.

Börnin látnu voru tveir þriggja ára drengir og fjögurra ára stúlka.

Enginn annar er grunaður um verknaðinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×