Erlent

Þjóðernissinnar að ná stjórnartaumunum

Guðsteinn Bjarnason skrifar
Stuðningsfólk þýska AfD-flokksins gekk sigri hrósandi um götur í Erfurt í Þýskalandi á mánudaginn, eftir að flokkurinn hafði náð góðum árangri í landsþingskosningum í Berlín.
Stuðningsfólk þýska AfD-flokksins gekk sigri hrósandi um götur í Erfurt í Þýskalandi á mánudaginn, eftir að flokkurinn hafði náð góðum árangri í landsþingskosningum í Berlín. Vísir/EPA
Félagar í þýska stjórnmálaflokknum Alternative für Deutschland eru kampakátir þessa dagana. Þeir hafa náð góðum árangri í kosningum í hverju sambandslandinu í Þýskalandi á fætur öðru undanfarið. Ýmsir aðrir fyllast þó óhug, sjá flokkinn nærast á því að kynda undir ótta fólks við flóttafólk og útlendinga almennt. Þannig fitni hann eins og púkinn á fjósbitanum. Nafn flokksins þýðir Valkostur fyrir Þýskaland. Hann vill bjóða fólki upp á aðra nálgun en gömlu flokkarnir, einkum hvað varðar málefni útlendinga.

„Það er hneykslanlegt og í hæsta máta ógnvekjandi hvernig ríkið hefur brugðist,“ sagði til dæmis Georg Pazderski, leiðtogi flokksdeildarinnar í Berlín, í yfirlýsingu sem hann sendi frá sér nú í vikunni. „Hælisleitendur gera það sem þeim sýnist og gömlu flokkarnir verja þá og styðja í því.“

Flokkurinn mælist nú með 16 prósenta fylgi á landsvísu samkvæmt nýrri skoðanakönnun þýska sjónvarpsins ARD, og er þar með orðinn þriðji stærsti flokkur Þýskalands, næst á eftir Kristilegum demókrötum, sem mælast með 32 prósent, og Sósíaldemókrötum sem mælast með 22 prósent.

Þjóðernishyggja vex

Þessi nýi stjórnmálaflokkur þjóðernissinna, stofnaður vorið 2013, er samkvæmt þessu orðinn stærri en Græningjar sem mælast með tólf prósent, Vinstriflokkurinn sem mælist með átta prósent og Frjálsir demókratar sem mælast með sex prósent.

Þetta vaxandi fylgi hefur skilað sér inn í kosningar í hverju sambandslandi Þýskalands á eftir öðru síðustu misserin, nú síðast í höfuðborginni Berlín þar sem flokkurinn fékk 14 prósent atkvæða og er kominn með 25 fulltrúa á landsþingið í Berlín.

Landsþingið í Berlín er eitt af sextán landsþingum í Þýskalandi. Hvert sambandslandanna sextán hefur nefnilega sitt landsþing og sína landsstjórn. Á næsta ári verða kosningar til þýska sambandsþingsins, og samkvæmt árangri flokksins undanfarið bendir allt til þess að hann eigi greiða leið þangað inn í fyrsta sinn.

Angela Merkel Þýskalandskanslari brást við þessari þróun nú í byrjun vikunnar, eftir að úrslitin í landsþingskosningunum í Berlín lágu fyrir, með því að viðurkenna að mörg mistök hefðu verið gerð í málefnum flóttamanna.

„Um tíma misstum við stjórnina,“ sagði hún. „Enginn vill að ástandið frá í fyrra endurtaki sig, ekki ég heldur.”

Leiðtogar AfD eru hins vegar í sjöunda himni: „Árið 2017 mun Angela Merkel þurfa að berjast fyrir póli­tísku lífi sínu og AfD verður þriðja stærsta stjórnmálaaflið í Þýskalandi, að minnsta kosti,“ sagði Beatrix von Storch, varaleiðtogi flokksins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×