Bíó og sjónvarp

Þjóðargersemin Óli

Stefán Árni Pálsson skrifar
Ólafur Stefánsson, þjálfarinn Boris Bjarni Akbachev, Grímar Jónsson og Árni Sveinsson.
Ólafur Stefánsson, þjálfarinn Boris Bjarni Akbachev, Grímar Jónsson og Árni Sveinsson. vísir/ernir
Ólafur Stefánsson er þjóðargersemi. Íslenska þjóðin elskar þennan farsæla handboltamann. Í heimildarmyndinni Óli Prik fær maður að skyggnast inn í líf mannsins bak við boltann.

Ósjaldan hefur Ólafur verið djúpur í sinni nálgun á lífið og oft og tíðum skilur fólk hvorki upp né niður í því sem hann segir. Og engin er undantekningin í þessari mynd, hann er djúpur sem aldrei fyrr. Myndin er raunveruleg og sýnir meðal annars hversdagsleikann í lífi Ólafs Stefánssonar.

Árni Sveinsson kvikmyndagerðarmaður eltir líf og afrek Ólafs og setur hlutina vel í samhengi. Þessi margverðlaunaði íþróttamaður er eftir allt saman bara maður. Hann á venjulega fjölskyldu, gengur í gegnum erfiða tíma eins og allir og ræður ekki við allt sem hann tekur sér fyrir hendur. Hann hefur sína bresti og kann ekki allt.

Eftir að hafa séð myndina sér maður að Ólafur er hreinskilinn maður sem hefur í raun fengið nóg af íslenska draumnum – að vera atvinnumaður í handbolta.

„Er þetta ekki bara komið gott,“ segir Ólafur í mjög eftirminnilegri senu í myndinni. Þá vitnar hann í þátt sem gerður var á RÚV, honum til heiðurs og um feril hans. Fjölskylda hans settist niður til að horfa á þáttinn saman sem fjallaði um handboltamanninn sem sigraði heiminn og vann allt. Hann virðist þá átta sig á að það sé kominn tími til að leita nýrra tækifæra og áskorana.

„Ég skrái mig bara núna í Listaháskólann og verð listamaður, kannski verð ég bara héðan í frá Óli Prik,“ sagði Óli eftir að hafa horft á heiðursþáttinn á RÚV.

Nú eru aðrir tímar hjá Ólafi þó að líf hans sé langt í frá búið. Handboltinn er kominn í annað, þriðja ef ekki fjórða sæti. Hann hefur ákveðið að tileinka börnum þetta tímabil í lífi sínu og vinnur hörðum höndum að smáforriti sem kallast Keywe. Í myndinni skynjar maður að verkefnið skiptir hann miklu máli og hans sterki metnaður er greinilega kominn þangað.

Myndin fjallar um mann sem er á tímamótum.

Hann er að kveðja gamla tíma og takast á við ný tækifæri. Hún er góð, fyndin og fyrst og fremst sönn.

Endirinn á myndinni er virkilega táknrænn, en Ólafur hættir sem þjálfari Vals eftir þó nokkurn aðdraganda. Myndin skilur eftir spurningu: Hvernig fer næsti kafli í lífi Ólafs Stefánssonar

Heimildarmynd um Ólaf Stefánsson handboltamann.

Leikstjóri: Árni Sveinsson Framleiðandi: Grímar Jónsson

NIÐURSTAÐA: Myndin er góð, fyndin og fyrst og fremst sönn.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×