Íslenski boltinn

Þetta var æðisleg upplifun

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Sigrún Ella (nr. 28) lék vel í sínum fyrsta landsleik.
Sigrún Ella (nr. 28) lék vel í sínum fyrsta landsleik. Vísir/Andri Marinó
Ísland vann öruggan sigur á Ísrael í næstsíðasta leik liðsins í undankeppni HM 2015 á laugardaginn. Íslensku stelpurnar mættu ekki mikilli mótspyrnu, en ísraelska liðið átti til að mynda ekki skot að íslenska markinu í leiknum.

Þrjú mörk dugðu gegn slöku liði

Dagný Brynjarsdóttir skoraði fyrsta markið á 2. mínútu með skalla eftir fyrirgjöf Hallberu Gísladóttur og mistök Hanit Scwarz, í marki Ísraels. Þetta var níunda mark Dagnýjar í 47 landsleikjum. Fanndís Friðriksdóttir bætti öðru marki við á 26. mínútu með fallegu skoti fyrir utan vítateig. Þriðja markið kom svo í uppbótartíma, en þar var að verki fyrirliðinn Sara Björk Gunnarsdóttir sem hefur nú skorað 16 mörk í 77 landsleikjum.

Mörkin hefðu getað orðið fleiri, en Ísland lét þrjú duga gegn slöku liði sem sýndi oft leiðinlega tilburði. Leikmenn Ísraels lágu hvað eftir annað í grasinu en Freyr Alexandersson landsliðsþjálfari var mjög ósáttur við framkomu þeirra.

„Þetta er bara til skammar og kvennaknattspyrnunni ekki til framdráttar. Það fannst öllum þetta leiðinlegt og ég vil ekki sjá þetta,“ sagði Freyr í samtali við Fréttablaðið eftir leikinn.

Hann sagði að íslenska liðið hefði oft spilað betur: „Við töluðum um það að við þyrftum að taka betri ákvarðanir á þeirra sóknarhelming. Ég er ósáttur við of mikið af sendingum sem fóru ekki á bláa treyju, en mörkin þrjú voru fín,“ sagði Freyr sem hrósaði varamönnunum þremur:

„Þetta voru frábærar innkomur hjá Sigrúnu (Ellu Einarsdóttur), Guðmundu (Brynju Óladóttur) og Gunnhildi (Yrsu Jónsdóttur), og þá sérstaklega hjá Sigrúnu. Hún var að spila sinn fyrsta leik og mér fannst hún frábær.“

Langaði að breyta til

Þessi nýjasta landsliðskona Íslands var að vonum ánægð þegar Fréttablaðið heyrði í henni hljóðið í gær.

„Þetta var æðisleg upplifun,“ sagði Sigrún sem sagðist hafa fundið sig vel á þeim rúmu 20 mínútum sem hún spilaði í leiknum: „Þetta gekk nokkuð vel. Ég reyndi bara að gera það sem ég hef verið að gera í sumar. Þetta voru skemmtilegar mínútur sem ég fékk á móti Ísrael.“

Sigrún, sem leikur sem hægri kantmaður, er uppalinn FH-ingur en gekk í raðir Stjörnunnar fyrir tímabilið. Hún segist ekki sjá eftir þeirri ákvörðun: „Mig langaði aðeins að breyta til. Ég var búin að vera í FH frá því ég var fimm ára og langaði í smá tilbreytingu og meiri áskorun,“ sagði Sigrún og bætti við:

„Stjarnan er auðvitað Íslandsmeistari og ég leit á það sem hörkuáskorun að fara í þetta sterka lið. Ég sé ekki eftir þessari ákvörðun.“

Stjörnunni hefur gengið allt í haginn á tímabilinu, en liðið á Íslandsmeistaratitilinn vísan þegar tvær umferðir eru eftir af Pepsi-deild kvenna. Stjarnan tryggði sér einnig bikarmeistaratitilinn með 4-0 sigri á Selfossi fyrir tveimur vikum, en þetta var fyrsti titilinn sem Sigrún vinnur í meistaraflokki.

Hún stefnir á að halda sæti sínu í íslenska landsliðinu: „Já, þar vil ég vera. Og miðað við byrjunina er það alveg raunhæft og vonandi gengur það eftir,“ sagði Sigrún Ella Einarsdóttur, nýjasta landsliðskona Íslands að lokum.


Tengdar fréttir

Þarf að skoða yngri leikmenn

Freyr Alexandersson, þjálfari íslenska kvennalandsliðsins í fótbolta, er byrjaður undirbúa undankeppni EM 2017. Þrjár þaulreyndar landsliðskonur voru ekki valdar í íslenska hópinn sem mætir Ísrael og Serbíu.

Freyr: Þú verður að klára færin

"Við fengum mörg færi, pressuðum vel og komum okkur í opnar stöður og í svona leikjum þá verður þú að klára færin sem þú færð og við erum að súpa seyðið af því,“ sagði Freyr Alexandersson þjálfari Íslands eftir 1-0 tapið gegn Danmörku á Laugardalsvelli í kvöld.

Skil sátt við landsliðið

Þóra B. Helgadóttir verður í eldlínunni með íslenska landsliðinu gegn Ísrael í dag og gegn Serbíu á miðvikudaginn en það verða síðustu landsleikir hennar. Þóra gerir ráð fyrir að leggja hanskana á hilluna í haust.

Ólína hætt með landsliðinu

Bakvörðurinn Ólína Guðbjörg Viðarsdóttir tilkynnti í viðtali á RÚV í hálfleik Íslands og Ísrael á Laugardalsvelli að hún sé búinn að setja landsliðsskóna upp í hillu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×