Viðskipti innlent

The Engine #Iceland og Fanbooster sameina krafta sína

Sæunn Gísladóttir skrifar
Haukur Jarl Kristjánsson segist hlakka til að sýna íslenskum fyrirtækjum hvernig þau geti fært notkun sína á samfélagsmiðlum upp á hærra plan.
Haukur Jarl Kristjánsson segist hlakka til að sýna íslenskum fyrirtækjum hvernig þau geti fært notkun sína á samfélagsmiðlum upp á hærra plan. MYND/GETTY

Internet markaðssetningar sérfræðingarnir hjá The Engine eru nú að efla starfsemi sína á sviði samfélagsmiðla og hafa bundist samstarfi við hið norska Fanbooster, til að kynna íslensk fyrirtæki fyrir hinu öfluga viðmóti.

„Við erum mjög spennt fyrir samstarfinu við Fanbooster, og hlökkum til að sýna íslenskum fyrirtækjum hvernig þau geta fært notkun sína á samfélagsmiðlum upp á hærra plan með því að nota þennan hugbúnað sem þjónustu,“ segir Haukur Jarl Kristjánsson, deildarstjóri og meðeigandi  The Engine.

The Engine, sem áður var þekkt sem Nordic eMarketing, hefur um yfir 15 ára skeið starfað á sviði netmarkaðssetningar. „Við sinnum í rauninni flestum þáttum sem snúa að markaðssetningu á netinu, til að mynda auglýsingum á samfélagsmiðlum. Við sinnum viðskiptavinum innlendis og erlendis, allt frá litlum bílaleigum í Fortune 500 fyrirtæki,” segir Haukur Jarl.

Haukur Jarl Kristjánsson er deildarstjóri og meðeigandi The Engine.Mynd/Haukur Jarl

Fanbooster er viðmót sem er helgað markaðssetningu á samfélagsmiðlum og er fyrirtækið eitt af aðeins 130 aðilum um allan heim sem eru aðilar að Facebook Marketing Partners prógramminu. „Fanbooster hefur verið að sækja í sig veðrið á samfélagsmiðlamarkaðnum og eru að bjóða upp á þjónustu sem auðveldar fólki lífið til að sinna sínum viðskiptavinum. Þau eru núna að stækka við sig og bæta við sig löndum og eru að opna á Ísland í enn meiri mæli en þeir hafa gert. Þeir eru að nýta okkur sem hálfgert útibú. Þetta þýðir fyrst og fremst aukin gæði í markaðssetningu á samfélagsmiðlum fyrir markaðinn,” segir Haukur Jarl. „Þetta er svolítið level up fyrir Ísland.”

Á síðustu fimm árum hefur Fanbooster orðið eitt af leiðandi fyrirtækjum Evrópu í markaðssetningu á félagsmiðlum. Á meðal viðskiptavina okkar má telja fyrirtæki eins og L‘Oréal, Canon, William Hill og Nordic Choice Hotels. Fanbooster hjálpar notendum að spara tíma og auka árangur við ýmis verk, til að mynda; auglýsingar, birtingar, lendingarsíður herferða, statistík, umtalshlerun (buzz monitoring) og almenna notkun á viðmóti Facebook. Þótt aðaláherslan sé á Facebook eru aðrir samfélagsmiðlar svo sem Instagram, Twitter, YouTube og fleiri miðlar einnig innifaldir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×