Viðskipti innlent

Tenova Pyromet byggir ofn fyrir kísilverksmiðju United Silicon

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Mynd af útlitsteikningu kísilverksmiðju United Silicon í Helguvík.
Mynd af útlitsteikningu kísilverksmiðju United Silicon í Helguvík. Mynd/United Silicon
United Silicon í Helguvík hefur samið við alþjóðlega fyrirtækið Tenova Pyromet um byggingu og uppsetningu á risastórum 32 megavatta ljósbogaofni fyrir kísilverksmiðju félagsins í Helguvík. Þetta verður fyrsti ofn sinnar tegundar á Íslandi segir í tilkynningu frá United Silicon.

„Tenova Pyromet er leiðandi fyrirtæki í heiminum í framleiðslu háþróaðra kísilofna og eina fyrirtækið sem byggt hefur nýja kísilofna í hinum vestræna heimi á undanförnum árum,“ segir í tilkynningunni.

Framkvæmdir við byggingu fyrsta áfanga kílisverksmiðju United Silicon í Helguvík eru á döfinni. Jarðvegsframkvæmdir eru þegar hafnar á svæðinu. Verksmiðjuhúsið verður 41 metra hátt og um 5.000 fermetrar að stærð. Þar inni verður ljósbogaofninn sem framleiðir kísilmálminn. Áætlað er að framleiðsla hefjist á vormánuðum árið 2016 og nemi 21.300 tonnum á ári í fyrsta áfanga.

„Það er búið að tryggja raforku fyrir þennan fyrsta ofn en það eru 35 megavött. Miðað við fjóra ofna sem við stefnum að þarf kísilverksmiðjan 140 megavött  Við erum búnir að sækja um og fá starfsleyfi fyrir þrjá ofna í viðbót. Verksmiðjan er hönnuð með þessa stækkun í huga. Miðað við fjóra ofna verður framleiðslugetan 85.000 tonn á ári. Við stefnum að því að ná þessari framleiðslu á tíu árum,“ segir Magnús Garðarsson, framkvæmdastjóri United Silicon, í tilkynningunni.

Magnús segir verkefnið afar umfangsmikið, muni á uppbyggingartíma skapa allt að 300 störf og um 60 störf eftir að verksmiðjan hefji starfsemi.


Tengdar fréttir

Vona að kísilverin bjargi fjárhag Reykjaneshafnar

Bæjaryfirvöld í Reykjanesbæ binda vonir við að kísilmálmverksmiðjurnar sem eiga að rísa í Helguvík geti snúið rekstri Reykjaneshafnar við. Fyrirtækið skuldar 7,3 milljarða. United Silicon fær 50% afslátt af fasteignaskatti.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×