Viðskipti innlent

Telur ójafnræði viðskiptavina Dróma ólíðandi og hyggst taka málið upp

Þorbjörn Þórðarson skrifar
Guðlaugur Þór Þórðarson, alþingismaður.
Guðlaugur Þór Þórðarson, alþingismaður.
Guðlaugur Þór Þórðarson, alþingismaður, segir það óskiljanlegt að útlán viðskiptavina SPRON hafi ekki flust með innlánum í Arion banka á sínum tíma. Hann segir ójafnræðið sem viðskiptavinir Dróma þurfa að þola með öllu ólíðandi og hyggst taka málið upp á fundi efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis.

Við sögðum frá því í fréttum okkar í gær að Arion banki væri langstærsti kröfuhafi Dróma hf. en 78 prósent allra skulda Dróma eru við bankann.

Skýringin á því er sú að þegar innlán SPRON voru flutt í Arion banka gaf Drómi út skuldabréf í staðinn sem endurgjald fyrir innlánin sem voru flutt yfir.

Viðskiptavinir SPRON lentu því í raun á tveimur stöðum. Voru með sparifé sitt hjá Arion banka en útlán hjá Dróma. Margir þeirra eru ósáttir við að hafa ekki notið sömu kjara og viðskiptavinir stóru bankanna við úrlausn sinna mála hjá Dróma og kvartanir hafa hrannast upp hjá umboðsmanni skuldara.

Guðlaugur Þór Þórðarson þingmaður segir það ójafnræði sem viðskiptavinir Dróma hafi þurfta að þola með öllu ólíðandi. Þá telur hann óskiljanlegt að útlánsafn SPRON hafi ekki verið flutt með innlánum yfir í Arion banka á sínum tíma. Guðlaugur Þór vill vinda ofan þeirri stöðu sem viðskiptavinir Dróma eru í og hefur óskað eftir fundi í efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis til þess að fara yfir málið.

Óþolandi ójafnræði

„Þetta ójafnræði er óþolandi og það hlýtur að vera verkefni nefndarinnar að fara yfir hvað er hægt að gera í þessu. Hvað við getum gert til að vinda ofan af þessu vegna þess að það fólk sem verður fyrir þessu hefur ekkert gert af sér annað en að velja eina fjármálastofnun fram yfir aðra á sínum tíma. Þá hljótum við að kalla eftir upplýsingum hverjir tóku ákvörðun um þetta og hvers vegna," segir Guðlaugur Þór.

Arion banki er með veð í öllum eignum Dróma og því í ágætri stöðu til að beita sér í málinu. Það hefur bankinn ekki gert með beinum hætti en stjórnendur bankans hafa lýst því yfir að þeir telji þetta óheppilegt.

Hefur enn áhuga á íbúðalánum

„Strax í upphafi þegar Arion banki tók við innlánum viðskiptavina SPRON lýsti bankinn yfir áhuga á að taka einnig við íbúðalánum þeirra. Áhugi bankans á að taka yfir lán Dróma hefur ekki breyst og hefur bankinn beitt sér í málinu bæði gagnvart stjórnvöldum og gagnvart Dróma. Sú staðreynd að Arion banki er með veð í eignum Dróma gefur bankanum ekki heimild til að taka yfir lánasafnið, um slíka yfirtöku þarf að semja. Hingað til hefur hins vegar ekki tekist að skapa samningsgrundvöll, hvað varðar kjör og skilmála, fyrir yfirtöku bankans á lánasafninu," segir Haraldur Guðni Eiðsson, talsmaður Arion banka. thorbjorn@stod2.is








Fleiri fréttir

Sjá meira


×