Innlent

Telur goslíkur aukast eftir því sem hrinan dregst á langinn

Kristján Már Unnarsson skrifar
Líkur á eldgosi aukast eftir því sem atburðarásin í Bárðarbungu dregst á langinn, að mati Magnúsar Tuma Guðmundssonar prófessors. Mat yfirvalda á stöðunni felst enn í tveimur lykilsetningum: Ekki sjást merki um að kvika sé á leið til yfirborðs. Skjálftahrinan er áfram öflug.

Vísindamenn eru ekki sammála um hvernig túlka eigi nokkra sterka skjálfti sem urðu í dag í sjálfri öskju Bárðarbungu. Menn segja ýmist að þeir þýði að þrýstingnum sé að létta af eldstöðinni en einnig er hin skoðunin uppi, að hún sé þvert á móti að aukast.

Í Öskju, húsi Jarðvísindastofnunar, hafa vísindamenn verið að bera saman bækur í dag og meta líkur á eldgosi.

„Það er alveg möguleiki að þetta endi með eldgosi og þær líkur hafa ekkert minnkað," sagði Magnús Tumi Guðmundsson. „Það má kannski segja að eftir því sem þetta stendur lengur, þá eru kannski meiri líkur á að það gerist eitthvað. En ég held að það séu ekki meiri líkur á gosi heldur en að þetta endi á hinn veginn. Það veit náttúrega enginn," sagði Magnús.

Vísindamenn telja sig hafa grófa mynd af því sem hafi verið að gerast undir Vatnajökli síðustu sex daga, að kvika hafi streymt undan öskju Bárðarbungu og síðan tll norðausturs í átt að Dyngjujökli og þar sé hún búin að mynda 25 kílómetra langan berggang á 5 til 10 kílómetra dýpi. Af þrívíddarmynd Veðurstofu af skjálftunum má átta sig á hvar berggangurinn er undir jöklinum. 

Kristín Vogfjörð, jarðskjálftafræðingur og rannsóknarstjóri Veðurstofu Íslands.Stöð 2/Baldur Hrafnkell.
Vísindamenn eru hins vegar ekki á einu máli um hvernig beti að túlka stóra skjálfta sem urðu í öskju Bárðarbungu í nótt og í morgun. 

Kristín Vogfjörð, rannsóknarstjóri Veðurstofunnar, segir það sitt mat, með samtúlkun við gps-gögn, að þrýstingur sé að minnka í öskjunni og hún að síga.

Ingi Bjarnason, jarðskjálfta- og jarðeðlisfræðingur á Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands.Stöð 2/Baldur Hrafnkell.
Ingi Þorleifur Bjarnason, jarðskjálfta- og jarðeðlisfræðingur á Jarðvísindastofnun, túlkar skjálftana þveröfugt: Þrýstingur sé að aukast og fjallið að lyftast, meiri kvika sé að berast inn í eldstöðvakerfið. 

Í fréttum Stöðvar 2 í kvöld lýsti Magnús Tumi líklegri atburðarás, ef eldgos kæmi upp.


Tengdar fréttir

Skjálftinn var 4,5 stig

Sérfræðingar Veðurstofunnar hafa endurmetið stærð stóra skjálftans sem varð í Bárðarbungu í nótt.

Viðbúnaðarstig áfram appelsínugult

Ákveðið hefur verið að breyta ekki viðvörunarstigi fyrirflugmálayfirvöld vegna jarðhræringanna í og við Bárðarbungu.

Skjálfti upp á 4,0 stig

Tveir nokkuð stórir jarðskjálftar urðu nærri Bárðarbungu fyrir hádegi í dag.

Víðtækar lokanir á hálendinu

Vísindaráð almannavarna telur að að kvika sé á hreyfingu austan við Bárðarbungu við jökuljaðar Dyngjujökuls.

Kvika talin streyma inn í eldstöðina af miklu afli

Almannavarnir lýstu í kvöld yfir hættustigi norðan Dyngjujökuls og hafa ákveðið að hálendið þar verði rýmt. Mikið magn kviku er talið streyma upp í Bárðarbungueldstöðina.

Aðgerðir koma illa við ferðaþjónustuna

Hræringarnar undir Bárðarbungu þegar haft mikil áhrif á samfélagið, meðal annars á ferðaþjónustu. Rauði krossinn er búinn undir hamfarir eins og aðrir viðbragðsaðilar.

Hratt kvikuflæðið á við hálfa Þjórsá

Hraunelfan sem streymir úr iðrum Bárðarbungu er að umfangi álíka og flæði hálfrar Þjórsár og hefur þegar myndað 25 kílómetra langan berggang undir Vatnajökli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×