Tekjur Íslendinga dreifast jafnar en áður 26. mars 2012 09:07
Tekjur Íslendinga dreifðust jafnar árið 2011 en þær hafa gert síðan mælingar hófust með lífskjararannsókn Hagstofunnar árið 2004. Þetta kemur fram á vefsíðu Hagstofunnar. Þar segir að bilið milli tekjuhópa hefur minnkað verulega frá árinu 2009 og er tekjuhæsti fimmtungurinn nú með 3,3 sinnum hærri tekjur en sá lægsti. Til samanburðar var hlutfallið 4,2 árið 2009. Gini-stuðullinn svonefndi, sem er annar mælikvarði á tekjudreifingu, var 23,6 en fór hæst í 29,6 árið 2009. Ráðstöfunartekjur á neyslueiningu á föstu verðlagi miðað við vísitölu neysluverðs sýna að kaupmáttur er svipaður og hann var árið 2004 hjá öllum tekjuhópum. Á árunum 2004 til 2009 jókst kaupmáttur hjá öllum tekjuhópum, en mest í tekjuhæsta fimmtungnum. Jafnframt dróst kaupmáttur tekjuhæsta fimmtungsins meira saman en hjá öðrum árin 2010 og 2011. Árið 2011 voru 13,6% Íslendinga undir lágtekjumörkum eða í hættu á félagslegri einangrun. Mælingin er grunnur að einu af fimm lykilmarkmiða Evrópusambandsins fyrir árið 2020. Árið 2010 var Ísland með lægsta hlutfallið meðal þeirra Evrópulanda sem standa að mælingunni. Mælingin byggist á þremur þáttum: heimilistekjum, vinnuþátttöku heimilismanna og hvað heimilin geta leyft sér af efnislegum gæðum. Hlutfall einstaklinga undir lágtekjumörkum var 9,2 en það hefur ekki mælst lægra.
Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Skelltu líka í lás á Exit og í Nýju vínbúðinni Viðskipti innlent Fjármálastjóri Play segir upp Viðskipti innlent Innsigla B5 að kröfu Skattsins Viðskipti innlent Reksturinn þungur í kjölfar „yfirgangs og afskipta lögreglu“ Viðskipti innlent Endurgjöf: Það sem þú átt ekki að gera Atvinnulíf Tryggðu sér 300 milljóna króna fjármögnun Viðskipti innlent Eitruð vinnustaðamenning algeng og margfaldar líkur á kulnun Atvinnulíf Sagðir vilja frekar loka TikTok en selja Viðskipti erlent Töpuðu þremur milljörðum á fyrsta ársfjórðungi Viðskipti innlent Nú er hægt að elta góða veðrið um landið með kortavef Já.is Samstarf Fleiri fréttir Reksturinn þungur í kjölfar „yfirgangs og afskipta lögreglu“ Fjármálastjóri Play segir upp Tryggðu sér 300 milljóna króna fjármögnun Skelltu líka í lás á Exit og í Nýju vínbúðinni Innsigla B5 að kröfu Skattsins Töpuðu þremur milljörðum á fyrsta ársfjórðungi Farsímatekjur undir væntingum Hæstiréttur sker úr um hvort taka hafi mátt bjór úr hillum Samþykkja helming umsókna um sölu eigna fyrir lok vikunnar Selma nýr formaður Kvenna í orkumálum Verðbólgan minnkar en vextirnir hækka Minnsta verðbólga í rúm tvö ár Tekjuhæsti fyrsti ársfjórðungur í sögu Icelandair Hefja viðræður um kaup á 47 þúsund fermetrum af atvinnuhúsnæði Reynslunni ríkari og opnar Wilson‘s Pizza á ný Stefna að opnun Fiskbúðarinnar við Sundlaugaveg í maí Anna Kristín nýr framkvæmdastjóri hjá atNorth Oculis komið á markað Viðskipti með bréf í Oculis hefjast á morgun Hættir sem fjármálastýra Ljósleiðarans Tekur við stöðu framkvæmdastjóra Grænna skáta Fækkuðu tímum í skriffinnsku um tugi klukkustunda á mánuði Breytinga þörf eigi Landsbankinn ekki að keppa á markaði Jón nýr formaður bankaráðs Landsbankans Sýn hættir við að selja vefmiðla og útvarp Sólin sest fyrir fullt og allt á Sælunni Opna verslun á Keflavíkurflugvelli þar sem Arion var áður Bein útsending: Hraunflæðihermar og hönnun hraunvarna Hafa náð nýjum sölusamningi í Bandaríkjunum Framkvæmdastjóri Jafnréttisstofu til Visku Sjá meira