Körfubolti

Teitur spáir sögulegum íslenskum sigri 31. ágúst 2017

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Teitur Örlygsson.
Teitur Örlygsson. Vísir/Valli
Teitur Örlygsson, sigursælasti leikmaður úrslitakeppni karla í körfubolta frá upphafi, ætlar að mæta til Finnlands næsta sumar til að verða vitni af sögulegum sigri.

Teitur spáði um úrslit fyrsta leiks Íslands á Eurobasket 2017 eftir að það kom í ljós hverjir mótherjar íslenska liðsins verða næsta sumar.

Íslenska liðið er í riðli með Frakklandi, Póllandi, Slóveníu, Finnlandi og svo Grikklandi sem verða fyrstu mótherjar íslensku strákanna í keppninni.

„1.sigur okkar i lokakeppni kemur 31.águst 2017. last það fyrst hér. Ég ætla að vera á staðnum,“ skrifaði Teitur inn á Twitter.

Þann dag mæta íslensku strákarnir hinu sterka liði Grikkja sem varð í sjöunda sæti á síðasta EM. Íslenska liðið stóð sig vel á sínu fyrsta EM fyrir tveimur árum en varð engu að síður að sætta sig við tap í öllum fimm leikjum sínum. Íslenska liðið er því enn að bíða eftir sínum fyrsta sigurleik á Eurobasket.

Sagan er heldur ekki með strákunum okkar þegar kemur að leikjum við Grikki.  

Ísland hefur tapað öllum þremur leikjum sínum við gríska landsliðið í gegnum tíðina en þjóðirnar hafa samt ekki mæst í tæpan aldarfjórðung.

Teitur Örlygsson, sem á að baki 118 landsleiki, spilaði einmitt síðasta leik Íslands við Grikki en íslenska liðið tapaði þá naumlega með fjórum stigum í forkeppni Ólympíuleikanna 22. júní 1992.

Teitur var sjálfur með fjórtán stig í þessum leik en stigahæstur var Valur Ingimundarson með 25 stig. Valur var stigahæstur í tveimur síðustu leikjum Íslands á móti Grikkjum en hinn var árið 1987.

Teitur átti seinna eftir að fara út til Grikklands og spila í eitt tímabil, 1996-97, með liði Larissa.

Teitur Örlygsson er sá eini í sögu íslenska körfuboltans sem hefur orðið tíu sinnum Íslandsmeistari eftir úrslitakeppni.


Tengdar fréttir

Hörður Axel: Lið eru hætt að vanmeta okkur

Hörður Axel Vilhjálmsson var viss þegar hann var spurður að því hvort hann hafi orðið fyrir vonbrigðum með riðilinn sem íslenska körfuboltalandsliðið lenti í á EM á næsta ári.

Logi: Fengum flest góðu liðanna

Logi Gunnarsson fylgdist með drættinum fyrir EM 2017 í höfuðstöðvum KKÍ í dag ásamt félögum sínum í íslenska körfuboltalandsliðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×