Síminn Cyclothon

Fréttamynd

Hjólar í vinnunni

"Nútíma karlmenn hafa hreinlega ekki tíma fyrir einhvern leikaraskap og það þarf að beita útsjónasemi ætli menn að ná árangri í svona hjólreiðakeppnum," segir Ólafur Tryggvason, einn liðsmanna í hjólaliðinu Expendables Cycling Team sem tekur þátt í WOW Cyclothon hjólreiðakeppninni í júní. Ólafur slær tvær flugur í einu höggi með því að sinna vinnu sinni hjá Opnum Kerfum á sama tíma og hann æfir af fullum krafti, eins og myndin ber með sér.

Lífið
Fréttamynd

Skoppa og Skrítla mæta á hjólasöfnun

Hjólasöfnun Barnaheilla - Save the Children á Íslandi og hjólreiðakeppninnar Wow Cyclothon hefst í dag. Þetta er í annað sinn sem staðið er fyrir söfnun á notuðum reiðhjólum fyrir börn og unglinga, en söfnunin stendur til 3. júní 2013. Hjólunum verður safnað á endurvinnslustöðvum Gámaþjónustunnar, Hringrásar og Sorpu á

Innlent
Fréttamynd

Hjólreiðakeppni í kringum landið

Stofnuð hefur verið sjálfseignarstofnunin Wow sport, meðal annars til að efna til árlegrar alþjóðlegrar hjólreiðakeppni hringinn í kringum Ísland.

Innlent
Fréttamynd

Piltarnir urðu fyrstir

Piltarnir komu fyrstir í mark í WOW Cyclothon hjólreiðakeppninni. Þeir hjóluðu túrinn á 40 klukkustundum og 57 mínútum. Hjólað var með boðsveitarformi hringinn í kringum landið um Hvalfjörð og yfir Öxi, samtals 1.332 kílómetra.

Innlent
Fréttamynd

Gaf gömul hjól og býður fjölskyldunni til útlanda

Alls söfnuðust um 500 reiðhjól í hjólasöfnun Barnaheilla — Save the Children á Íslandi og WOW Cyclothons. Ung stúlka var vinningshafi söfnunarinnar en hún gaf tvö hjól og getur nú boðið fjölskyldu sinni til útlanda.

Innlent
Fréttamynd

Hjóla til styrktar Barnaheillum

Þrettán lið hjólreiðakappa munu næstu daga hjóla hringinn í kringum landið í alþjóðlegu hjólreiðakeppninni WOW Cyclothon. Liðin eru að safna áheitum vegna hjólreiðanna sem munu renna óskipt til áheitaverkefnis Barnaheilla sem nefnist „Hreyfing og líkamlegt heilbrigði barna“.

Innlent
Fréttamynd

Hjólaviðgerðir undir ljúfum tónum

Barnaheill – Save the Children á Íslandi og hjólreiðakeppnin WOW Cyclothon stóðu fyrir söfnun á notuðum reiðhjólum fyrir börn og unglinga dagana 17. maí – 11. júní 2012. Viðtökur almennings voru framar vonum og alls söfnuðust um 500 hjól á endurvinnslustöðvum Gámaþjónustunnar og Hringrásar um landið allt og hjá Sorpu á höfuðborgarsvæðinu.

Lífið
Fréttamynd

Safna hjólum fyrir efnaminni börn

Hjól sem standa óhreyfð inni í bílskúr geta nú öðlast nýtt líf. Barnaheill og hjólreiðakeppnin WOW Cyclothon standa fyrir hjólasöfnun á landsvísu sem stendur til 11. júní næstkomandi.

Innlent
Fréttamynd

Krakkar í Álfhólsskóla komu færandi hendi

Hressir krakkar í 7 EJ í Álfhólsskóla í Kópavogi komu með gömul hjól og gáfu í söfnun Barnaheilla og Wow Cyclothon fyrir hádegi í dag. Söfnunin stendur til 11. júní næstkomandi. Hjólunum verður safnað á endurvinnslustöðvum Gámaþjónustunnar og Hringrásar um landið allt og hjá Sorpu á höfuðborgarsvæðinu. Hjólin eru ætluð börnum sem ekki hafa kost á því að kaupa sér reiðhjól. Á leiðinni fundu börnin að afhendingarstað fundu börnin í Álfhólsskóla eitt hjól. Það var svo gamalt og úrelt að börnin drógu þá ályktun að enginn ætti það og kipptu þau hjólinu því með.

Innlent
Fréttamynd

Halda alþjóðlega hjólakeppni á Íslandi

Alþjóðlega hjólreiðakeppnin WOW Cyclothon verður haldin á Íslandi dagana 19. júní -22. júní. Í keppninni munu 20 fjögurra manna lið keppa sín á milli um hvaða lið mun koma fyrst í mark eftir að hafa hjólað 1332 kílómetra hringinn í kringum landið. Hjólakeppnir sem slíkar eru vinsælar erlendis og þótti aðstandum keppninnar tími til kominn að Ísland gæti boðið upp á keppni sem yrði eftirsótt á erlendri grundu, ekki síst vegna miðnætursólarinnar. Markmiðið er ekki eingöngu að hjóla til sigurs heldur einnig að styðja gott málefni. Liðin safna áheitum og í samvinnu við Barnaheill - Save the Children á Íslandi verður efnt til átaksverkefnis um heilsu og hreyfingu barna.

Innlent