Innlent

Gaf gömul hjól og býður fjölskyldunni til útlanda

Kjartan Hreinn Njálsson skrifar
Sigrún Elísa Eyjólfsdóttir gaf tvö gömul hjól.
Sigrún Elísa Eyjólfsdóttir gaf tvö gömul hjól. mynd/Barnaheill
Alls söfnuðust um 500 reiðhjól í hjólasöfnun Barnaheilla — Save the Children á Íslandi og WOW Cyclothons. Ung stúlka var vinningshafi söfnunarinnar en hún gaf tvö hjól og getur nú boðið fjölskyldu sinni til útlanda.

Tekið var við reiðhjólunum á endurvinnslustöðum Gámaþjónustunnar og Hringrásar um land allt og hjá Sorpu á höfuðborgarsvæðinu.

Hjólasöfnunin er hluti af átaksverkefni í tengslum við áheitasöfnun WOW Cyclothon hjólreiðakeppninni en hún er fyrsta alþjóðlega hjólreiðakeppnin sem haldin hefur verið á Íslandi.

Sigrún Elísa með gömlu hjólin tvö.mynd/barnaheill
Til mikils var að vinna fyrir þá sem voru reiðubúnir að gefa gömlu reiðhjólin sín. Sigrún Elísa Eyjólfsdóttir gaf tvö gömul hjól og í gær, við upphaf hjólreiðakeppninnar, fékk hún afhent verðlaunin — flugmiða frá WOW Air.

Upphaflega áttu verðlaunin að vera fjórir flugmiðar en þar sem fjölskyldumeðlimir Sigrúnar Elísu eru fimm var ákveðið að bæta einum miða við.

Þrettán hjólalið taka þátt í WOW Cyclothon en þau hjól 1.332 kílómetra. Seinnipartinn í dag voru fremstu lið að nálgast Egilsstaði en talið er að þau muni skila sér til Reykjavíkur annað kvöld.

Öll áheit á liðin renna óskipt til áheitaverkefnis Barnaheilla — Save the Children á Íslandi „Hreyfing og líkamlegt heilbrigði barna." Hægt er að heita á liðin hér.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×