Lífið

Hjólar í vinnunni

Nútímamenn hafa ekki tíma fyrir leikaraskap.
Nútímamenn hafa ekki tíma fyrir leikaraskap.

„Nútíma karlmenn hafa hreinlega ekki tíma fyrir einhvern leikaraskap og það þarf að beita útsjónasemi ætli menn að ná árangri í svona hjólreiðakeppnum," segir Ólafur Tryggvason, einn liðsmanna í hjólaliðinu Expendables Cycling Team sem tekur þátt í WOW Cyclothon hjólreiðakeppninni í júní. Ólafur slær tvær flugur í einu höggi með því að sinna vinnu sinni hjá Opnum Kerfum á sama tíma og hann æfir af fullum krafti, eins og myndin ber með sér.

Átakið Hjólað í vinnuna breyttist hjá Ólafi í Hjólað í vinnunni  sem er ágætis æfing; „Enda hjólreiðakeppnin hringinn í kringum landið ágætlega krefjandi verkefni svo allur undirbúningur er góður."

Á síðasta ári tók Ólafur þátt í keppninni, en þá sem bílstjóri. Hann kveðst álíta þáttöku sína í ár sem ákveðna afslöppun, hlutverk bílstjóra hafi reynt verulega á þolrifin; „það hlutverk er sennilega það erfiðasta í keppninni. Það verður bara að segjast eins og er að fyrir virkan einstakling er ekki auðvelt að keyra á 25-30 km hraða hringinn í kringum landið."

Liðsmenn í Expendables Cycling liðinu leggja ekki einungis metnað í að koma fyrstir í mark, þótt þeir segist vera annálaðir  „crossfittarar", heldur leggja þeir mikið uppúr að vera ofarlega - og helst efstir á lista yfir áheitasöfnun og leggja þannig góðu starfi Barnaheilla - Save the Children á Íslandi lið.  „Við ætlum að fara alla leið í þessu og það verður mikið fjör í okkur. Við erum á fullu við að undirbúa hressandi efni sem við hendum inná Facebook síðuna okkar og hvetjum fólk til að fylgjast með okkur, og auðvitað heita á okkur líka. Til þess er nú leikurinn gerður."

Hægt er að fylgjast með þeim félögum á fésbókarsíðu þeirra.

Alls hafa 27 lið skráð sig til þátttöku í WOW Cyclothoninu sem fram fer 19-22. júní þegar þátttakendur hjóla í boðsveitarformi hringinn í kringum landið. Nánari upplýsingar er að finna á áheitavefnum wowcyclothon.is, en öll áheit renna til Barnaheilla - Save the Children á Íslandi. Hægt er að fylgjast með keppninni þar og á facebook.com/wowcyclothon






Fleiri fréttir

Sjá meira


×