Lífið

Hjólaviðgerðir undir ljúfum tónum

Vesturport var á svæðinu að gera við, þar á meðal Nína Dögg.
Vesturport var á svæðinu að gera við, þar á meðal Nína Dögg.
Barnaheill – Save the Children á Íslandi og hjólreiðakeppnin WOW Cyclothon stóðu fyrir söfnun á notuðum reiðhjólum fyrir börn og unglinga dagana 17. maí – 11. júní 2012. Viðtökur almennings voru framar vonum og alls söfnuðust um 500 hjól á endurvinnslustöðvum Gámaþjónustunnar og Hringrásar um landið allt og hjá Sorpu á höfuðborgarsvæðinu.

Á laugardaginn komu sjálfboðaliðar saman þar á meðal meðlimir Vesturports og liðsmenn keppninnar og gerðu við hjólin undir ljúfum tónum Ómars og Óskars Guðjónssona.

Mæðrastyrksnefndir og Fjölskylduhjálp munu dreifa hjólunum strax að lokinni hjólreiðakeppninni, WOW Cyclothon, 22. júní næstkomandi en hjólin eru ætluð börnum sem eiga ekki kost á því að kaupa hjól.

Hjólreiðakeppin WOW Cyclothon hefst á morgun og er fyrsta alþjóðlega hjólreiðakeppnin sem haldin hefur verið á Íslandi. Hjólað verður 1332 kílómetra hringinn í kringum landið um Hvalfjörð og yfir Öxi með boðsveitarformi dagana 19. júní -22. júní í miðnætursólinni. Miðað við 30 km meðalhraða tekur keppnin um 48 klukkustundir en hámarkstími er 72 klukkustundir.

Í keppninni munu þrettán fjögurra manna lið keppa sín á milli um að koma fyrst í mark. Öll áheit á hjólaliðin sem taka þátt í Wow Cyclothon keppninni renna óskipt til áheitaverkefnis Barnaheilla – Save the Children á Íslandi „Hreyfing og líkamlegt heilbrigði barna". Hægt verður að heita á liðin til styrktar Barnaheillum á þessari síðu.

„Við hvetjum allt hjólreiðafólk til að mæta Kl. 18 fyrir utan Hörpu og fylgja keppendum úr hlaði."

Ræst verður kl. 19:00 og hjólað frá Hörpu í lögreglufylgd upp að Ártúnsbrekku.




Hér má sjá skemmtilegt video frá Stóra hjólaviðgerðardeginum:










Fleiri fréttir

Sjá meira


×