Pistillinn

Fréttamynd

Utan vallar: Hvað er LeBron James að spá?

Vísir fer yfir hvaða ástæður gætu legið að baki ákvörðun LeBron James um að nýta sér uppsagnarákvæði í samningi sínum við Miami Heat. Djúpt er kafað og skoðað hvort hann ætli sér jafnvel að vera áfram hjá Heat og sé að hjálpa liðinu að landa annarri stórstjörnu.

Körfubolti
Fréttamynd

Utan vallar: Prófum að samgleðjast öðrum

Að velja íþróttamann ársins er vandasamt verk. Stundum er erfitt að velja aðeins tíu á lista þar sem margt afreksfólk hefur átt frábært ár. Það hefur líka stundum komið fyrir að erfitt sé að fylla í sætin tíu á vondu íþróttaári. Þeim árum fer þó blessunarlega fækkandi.

Sport
Fréttamynd

Utan vallar: Mætum og styðjum

Flestir muna væntanlega hvar þeir voru föstudagskvöldið 6. september. Þeir sömu munu muna það eftir fimm ár, tíu ár og líklega allt þar til þeir yfirgefa þennan heim.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

Utan vallar: Korter í Kalmar

Lítil ástæða virðist til bjartsýni fyrir Evrópumót kvennalandsliða í knattspyrnu í sumar. Síðan stelpurnar okkar slógu út Úkraínu í tveimur umspilsleikjum um sæti í lokakeppninni í Svíþjóð hefur allt gengið á afturfótunum.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

Pistill: Endalausar dýfur

„Þetta er bara hluti af leiknum.“ „Maður gerir allt til þess að vinna.“ Hversu oft hefur maður heyrt afsakanir sem þessar fyrir því að hraustir menn hendi sér í gólfið við lítið sem ekkert tilefni. Allt er gert til þess að styrkja stöðu liðsins sem gæti, séu tilburðirnir nógu sannfærandi, leikið manni fleiri eða þurfa ekki að glíma við lykilmann úr röðum andstæðinganna.

Körfubolti
Fréttamynd

Gömlu góðu dagarnir

Í æfingaleiknum gegn Rússlandi á Spáni í febrúar bauð Lars Lagerbäck landsliðsþjálfari upp á afar forvitnilegt byrjunarlið. Alls fimm sóknarþenkjandi leikmenn, lipra og marksækna, með tveimur snöggum bakvörðum þar að auki. Á miðjunni var svo eitt akkeri (Emil Hallfreðsson) og svo miðverðir og markvörður fyrir aftan hann.

Fótbolti
Fréttamynd

Pistill: Fordóma ber ekki að umbera

Viðbrögð margra við fréttaflutningi af ummælum Arons Einars Gunnarssonar um albönsku þjóðina hafa komið mér á óvart. Miðað við ummæli margra knattspyrnuáhugamanna á samfélagsmiðlum virðast þeir margir þeirrar skoðunar að íslenskir fjölmiðlar hafi brugðist of hart við ummælum Arons Einars. Þá hafa ófáir íslenskir knattspyrnumenn tekið í svipaðan streng.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

Utan vallar: Upp með hausinn og áfram gakk!

Íslenskir knattspyrnuáhugamenn eru búnir að fara allan tilfinningaskalann síðustu daga. Fyrst vannst frábær sigur á Norðmönnum, sem hleypti mestu bjartsýnismönnum á mikið flug, en í kjölfarið fylgdi skellur á Kýpur sem kom öllum niður á jörðina. Þó svo tapið gegn Kýpur hafi verið sárt og leikurinn hreinasta hörmung hjá íslenska liðinu þá eru knattspyrnuáhugamenn almennt jákvæðir fyrir íslenska liðinu. Það er líka full ástæða til.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

ÓL-pistill: Takk fyrir allt

Nokkrum mínútum eftir leik Íslands og Ungverjalands stóð ég andspænis Ólafi Stefánssyni, einni mestu íþróttahetju þjóðarinnar frá upphafi, og reyndi að orða hálfviturlega spurningu svo viðtalið gæti hafist.

Handbolti
Fréttamynd

Pistillinn: Kostir þess að tapa

Pierre de Coubertin, faðir Ólympíuleika nútímans, sagði ávallt að það mikilvæga við Ólympíuleika væri ekki að vinna, heldur að taka þátt og að gera sitt besta.

Sport
Fréttamynd

Pistill: Óskiljanlegar ákvarðanir

Ólíklegt er að hornamaðurinn Þórir Ólafsson hafi jafnað sig á því að hafa ekki verið valinn í landsliðshóp Íslands í handbolta fyrir Ólympíuleikana í handbolta. Skyldi engan undra.

Handbolti
Fréttamynd

ÓL-Pistill: Ég keppi í eltingaleik

Í dag verða Ólympíuleikarnir settir og er ekki annað að sjá en að allt sé til reiðu hjá Bretunum. Þetta er mesta íþróttahátíð heimsins og teljast Ólympíuleikarnir til heimsviðburða, hvort sem er á sviði íþróttanna eða ekki.

Sport
Fréttamynd

Aðsendur pistill: Þjóðaríþrótt Íslendinga

Tvær góðar greinar hafa komið fram undanfarnar vikur, báðar um kvennahandbolta.Fjölluðu þær um hvernig hægt að bæta boltann og hvað beri að gera í því sambandi. Það ber að fagna þegar fólk kemur hugmyndum og umræðu af stað varðandi þjóðarsportið.

Handbolti
Fréttamynd

Pistillinn: Þér er boðið í stærstu veislu ársins

Íslenskir handboltaunnendur eru góðu vanir eftir frábæran árangur strákanna okkar síðustu árin og velgengni þeirra með félagsliðum sínum í bestu og stærstu deildum heims. Nú um helgina fara fram lokaúrsltin í Meistaradeild Evrópu og í þetta sinn eiga Íslendingar alls átta fulltrúa í þremur liðum af fjórum sem komust í undanúrslitin - sex leikmenn og tvo þjálfara. Það, eitt og sér, er ótrúlegt afrek.

Handbolti
Fréttamynd

Pistillinn: Vítaspyrnukeppni – algjör heppni?

"Þegar leikir fara í vítaspyrnukeppni er um happdrætti að ræða. Heppnin var einfaldlega með okkur í kvöld," sagði knattspyrnustjórinn Roberto Di Matteo að loknum dramatískum sigri Chelsea á Bayern München í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu á laugardag.

Fótbolti
Fréttamynd

Að vera samferða sjálfum sér

Fyrir nokkrum vikum bætti ég Íslandsmetið mitt í fimmtarþraut. Í kjölfarið átti ég samtal við eina bestu vinkonu mína sem vakti mig til umhugsunar og gaf mér innblástur í þennan pistil.

Sport
Fréttamynd

Show me the money!

Eftir nýliðið fótboltaár þurfti ég að setjast að samningaborði með knattspyrnufélaginu mínu hér í Örebro. Hér hef ég spilað við góðan orðstír síðan í ársbyrjun 2009 og hef haldið áfram að bæta minn leik hægt og bítandi þó ég sé að nálgast eftirlaunaaldur fótboltalega séð (Katrín Jónsdóttir fyrirliði landsliðsins er sem betur fer enn að teygja mörkin).

Sport
Fréttamynd

Pistillinn: Ógreidd meðlög og símreikningar

Útlendingar í íslenska körfuboltanum eru eilíft þrætuefni innan körfuboltahreyfingarinnar, skiljanlega. Vera þeirra og hve margir þeir eru hefur mikil áhrif á það hvernig deildin lítur út.

Sport
Fréttamynd

Utan vallar: Bikarmeistararnir úr leik við fyrstu hindrun

Bikarmeistarar Manchester City taka á móti grönnum sínum í United í hádeginu á sunnudag í þriðju umferð ensku bikarkeppninnar í knattspyrnu. Eftir 1-6 niðurlæginguna á Old Trafford fyrr í vetur eru einhverjir farnir að líta á United sem litla liðið í Manchester.

Enski boltinn
Fréttamynd

Pistillinn: Ekki sjá eftir neinu þegar ferlinum lýkur

Fæstir íþróttamenn lifa lúxuslíferni, það er mjög lítil prósenta íþróttamanna sem situr á milljörðum og baðar sig í frægðarljóma. Marga foreldra dreymir um að þeirra barn nái þangað, sé næsta stórstjarna íþróttanna, nái því sem pabbinn náði aldrei, að komast á miðjuna hjá Liverpool, í NBA-deildina eða verða næsta undrabarn golfsins. Það er því miður ekki líklegt, því milljónir annarra foreldra eru að hugsa nákvæmlega það sama.

Sport
  • «
  • 1
  • 2