Handbolti

ÓL-pistill: Takk fyrir allt

Eiríkur Stefán Ásgeirsson í London skrifar
Ólafur Stefánsson í Peking fyrir fjórum árum.
Ólafur Stefánsson í Peking fyrir fjórum árum. Mynd/Vilhelm
Nokkrum mínútum eftir leik Íslands og Ungverjalands stóð ég andspænis Ólafi Stefánssyni, einni mestu íþróttahetju þjóðarinnar frá upphafi, og reyndi að orða hálfviturlega spurningu svo viðtalið gæti hafist.

Við slíkar aðstæður verða allar spurningar heimskulegar. Ólafur hefur í vel á annan áratug farið fyrir hópi manna, strákanna okkar, sem hverju sinni hafa skipað íslenska handboltalandsliðið. Þetta er hópur sem hefur fært þjóðinni svo margar góðar stundir. Um það þarf ekki að fjölyrða.

Og nú var svo komið að þessi ótrúlegi íþróttamaður, mögulega við enda síns ferils, fékk að upplifa eitt sárgrætilegasta tap landsliðsins frá upphafi. Verðlaunapallurinn var innan seilingar og í þetta sinn átti að fara í efsta þrep. En það átti ekki að verða.

Ólafur gerði sitt besta til að svara spurningum mínum. Hann reyndi að koma tilfinningum sínum í orð en stóð eftir með tárin í augunum, klappaði mér á öxlina eins og að hann væri að biðjast afsökunar á að geta ekki gefið mér skýrari svör, sem var auðvitað fásinna. Svo gekk hann í burtu.

Það var margt við leik íslenska liðsins í fyrradag sem betur hefði mátt fara. En þannig er það alltaf og það er alltaf hægt að vera vitur eftir á. Íþróttir geta verið grimmar og í þetta sinn var það hlutskipti strákanna að tapa.

„Það verður líka að kunna að tapa," sagði Guðmundur Guðmundsson eftir að hafa stýrt sínum síðasta landsleik og komst ég ekki hjá því að leiða hugann að badmintonkonunum átta sem var vikið úr keppni fyrr á Ólympíuleikunum. Þær kunnu ekki að tapa.

Þegar fram líða stundir verður leikurinn gegn Ungverjum minningin ein. Hún verður að vísu slæm en við eigum sem betur fer margar góðar. Margar tengjast Ólafi Stefánssyni með beinum hætti og fyrir það er ég þakklátur.

Ólafur hefur í seinni tíð sagt að vegferðin skipti meira máli en áfangastaðurinn. Og vegferðin með honum hefur verið frábær, hvort sem henni lýkur nú eða ekki. Takk fyrir allt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×