Sigríður Víðis Jónsdóttir

Fréttamynd

Ekki horfa

Aleppo. Mosul. Jemen. Drukknuð börn í Miðjarðarhafinu. Það er föstudagur og þungt yfir mér. Ógnvænlegt ástand hefur verið að byggjast upp í norðurhluta Nígeríu og löndunum í kring. Vannærð börn eru í lífshættu. Fullt af þeim

Skoðun
Fréttamynd

Dó hann?

Það fyrsta sem slær hana er myrkrið. Svarta myrkur inni í miðjum bæ. Í svartnættinu sjást skuggar sem koma nær og nær. Bílljósin lýsa upp náföl andlit sem eru svo tekin að hún hefur aldrei séð annað eins. Janúarnóttin er ísköld.

Skoðun
Fréttamynd

Hanaa

Skruðningar berast úr símanum sem liggur á borðinu fyrir framan mig í vinnunni. "Átakalínan færist stöðugt til.“ Í símanum er yfirmaður UNICEF í Sýrlandi, Hanaa Singer. Hún er alvörugefin. Lýsir hörðum bardögum.

Skoðun
Fréttamynd

80.000 börn á Íslandi á flótta

Þegar ég kom heim frá Sýrlandi eftir þriggja mánaða dvöl sem ferðamaður hvatti ég alla til að heimsækja landið. Þar væri ótrúlega margt að sjá, sagan á hverju strái og gestrisnin einstök.

Skoðun
Fréttamynd

Tölvupóstsskrímslið

Stundum ætlar stórt tölvupóstsskrímsli að éta mig. Vinnupósturinn stoppar ekki. Sumir tölvupóstsdagar eru hins vegar hressari en aðrir. Sem ég sat í vinnunni hjá UNICEF á Íslandi og sendi ábendingu á fjölmiðla um börn í sárri neyð á skjálftasvæðinu í Nepal barst

Skoðun
Fréttamynd

Juba

Nóttin var dimm og ég bylti mér í tjaldinu, dýnulaus á grjótharðri mold. Tunglið vakti yfir mér þar sem ég lá innan girðingarinnar í miðstöð Sameinuðu þjóðanna í Juba í Suður-Súdan. Hafði fengið að tjalda þar á ferðalagi um svæðið sem blaðamaður eftir að friðarsamningarnir voru undirritaðir.

Skoðun
Fréttamynd

Níu dánir á Akureyri

"Alls hafa komið fyrir af mænusótt með máttleysi í Akureyrarhjeraði 31, þar af 9 dánir. Svarfdælahjeraði 13, þar af 7 dánir. Höfðahverfishjeraði, 1 dáinn. Siglufjarðarhjeraði 8, þar af 5 dánir. Reykdælahjeraði 4, þar af 2 dánir.“

Skoðun
Fréttamynd

Ouagadougou

Næringarspítalar eru skrýtnir staðir. Lífshættulega vannærð börn liggja um allt og halda ekki höfði. Sum börnin enduðu hér eftir að hafa drukkið óhreint vatn heima sem olli endurteknum magakveisum og niðurgangi. Hjá öðrum var ekki nóg til að borða á heimilinu. Sum komu í kjölfar þess að hafa fengið malaríu eða aðra sjúkdóma.

Skoðun
Fréttamynd

Æfðu þig, barn, æfðu þig

Ég man vel hvað ég hugsaði á mínum fyrstu tónleikum átta ára gömul: "Hvað er ég að gera fyrir framan allt þetta fólk?" Í fátinu sem varð eftir að ég hafði klárað að spila lagið mitt gleymdi ég nótunum á píanóinu. Rak tánna fast í þegar ég hljóp til baka að ná í þær.

Bakþankar
Fréttamynd

Konungur dýranna er ekki ljón

Krúttfréttir af dýrum eru klassískt fréttaefni. Konungur dýranna í íslenskum fjölmiðlum er hins vegar alls ekki ljón. Langt í frá. Það er pandabjörn.

Bakþankar
Fréttamynd

Kona í flóði

Ég ætti örugglega ekki að vera að skrifa þennan pistil en geri það nú samt. Hann verður til í ölduróti í brjáluðu bókaflóði. Einhvers staðar í útsoginu svömlum ég og frábæru konurnar sem flúðu frá Írak og fengu hæli á Akranesi.

Bakþankar
Fréttamynd

Ég drep þig eftir þrjá daga

Hvernig gerist það að maður er á flótta og fer á milli landa á fölsuðum skilríkjum? Til dæmis svona: Það geisar stríð, ringulreiðin er algjör, hættur allt í kring. Hér getið hvorki þið né börnin ykkar verið. En úps, skilríkin ykkar hafa glatast í öllu saman. Varasamt getur líka verið að segja rétt nafn, auk þess sem þjóðerni ykkar gæti orðið til þess að þið yrðuð stoppuð samstundis á landamærum.

Bakþankar
Fréttamynd

Nei, ha, hvað var ég að gera?

Athyglisbrestur er …að vera á kassa í búð en veskið varð eftir heima. Að hafa ekki græna glóru um hvert pin-númerið á kortinu er. Eða bara vera á kassanum og reyna að borga með ökuskírteininu.

Bakþankar
Fréttamynd

Niðurgangur

Það er eitthvað algjörlega klikkað við það hver önnur algengasta dánarorsök ungra barna er. Niðurgangspestir og ofþornun. Númer eitt er lungnabólga, númer tvö niðurgangur.

Bakþankar
Fréttamynd

Sagan af ráðinu eina

Einu sinni var ráð sem sumum fannst vera algjört óráð en öðrum hins vegar afar gott ráð. Það var kallað Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna. Þetta var valdamikið ráð og ályktaði sí og æ um heimsmálin, var eiginlega hálfgert Æðstaráð.

Bakþankar
Fréttamynd

Tommi og Jenni úti á sjó

Vá, var ekki gaman að vera krakki og búa í svona litlum bæ úti á landi?“ Vinir mínir úr Reykjavík horfðu spenntir á mig þar sem við ókum niður á höfn á Akranesi. "Já, vera úr svona bæ en ekki bara einhverju hverfi!“ héldu þeir áfram með glampa í auga. "Þegar tveir úr svona bæ hittast verður til allt önnur tenging en þegar einhver rekst á annan úr öðru hverfi í Reykjavík og þeir byrja að spjalla. Já, frábært, ertu úr Grafarvoginum?“

Bakþankar
Fréttamynd

Óvænta kreppuráðið

Er hægt að stunda ókeypis sport þar sem hverjum og einum er frjálst að gera nákvæmlega eftir eigin getu og fá um leið dagsskammt af nauðsynlegu, fersku lofti? Svarið er já.

Bakþankar
Fréttamynd

Spænska veikin í stofunni heima

Einn daginn þegar afi minn vaknaði var hrím í loftinu fyrir ofan hann. Hlutir voru freðnir – inni hjá honum. Þetta var árið 1918: Frostaveturinn mikla.

Bakþankar
Fréttamynd

Dagbók frá Eþíópíu

Um fjögurleytið hélt ég að það myndi líða yfir mig af hungri. Klukkan átta um kvöldið var mér óglatt, klukkan tíu var ég orðin slöpp. Ég var stödd í norðurhluta Eþíópíu og hafði ekki borðað síðan eldsnemma um morguninn. Ekki af því að nægan mat væri ekki að finna þarna, heldur vegna þess að ég var sauður sem hafði skipulega tekist að missa af opnum veitingastöðum og verslunum. Þetta var lúxusvandamál.

Bakþankar
Fréttamynd

Eftirlýst: Brýr, vegir og rigning!

Bömmer með brúna yfir Múlakvísl. Bömmer fyrir fólk í ferðaþjónustu á svæðinu. Bömmer að ekki sé tæknilega mögulegt að byggja brú í beljandi jökulfljóti á tveimur dögum og að eina til tvær vikur taki að hanna og smíða yfir 100 metra langt mannvirki sem stendur af sér þungaflutninga jafnt sem jökulburð.

Bakþankar
Fréttamynd

Kæra 7 ára barn, hertu þig

Hvernig varð það að viðtekinni hugmynd að börn sem hafa áhuga á að stunda íþróttir stefni almennt á að verða afreksíþróttafólk eða atvinnumenn? Þau skuli öll skara fram úr – með góðu eða illu.

Bakþankar
Fréttamynd

Leynilögregla og krydd í pokum

Þriggja metra langur forsetinn gnæfir óvænt yfir mér og ég stíg ósjálfrátt eitt skref til baka. Hann er með svört sólgleraugu og um varirnar leikur órætt bros.

Bakþankar
Fréttamynd

Írak verður ekkert mál, strákar

„Hvar er góða lífið sem okkur var lofað?“ sagði konan og leit ringluð á mig, í upplituðu tjaldi í vesturhluta Íraks. „Er þetta það?“ bætti hún við og benti út um tjalddyrnar, á lágreistar flóttamannabúðirnar. Sjálf leit ég ráðvillt á túlkinn minn og krotaði eitthvað í stílabókina. Þetta var sex árum upp á dag eftir að Bush

Bakþankar
Fréttamynd

Loftlausa fólkið

Við tölvuskjá um morgun situr svefndrukkin manneskja með bauga undir augum, axlirnar stífar, andlitið fölt. Morgunþreytan liggur eins og mara yfir skrifstofunni, syfjaður starfsmaður teygir sig

Bakþankar
Fréttamynd

Prinsinn á Bessastöðum

Einu sinni var prins í litlu landi, langt úti í sjó. Hann átti heima í húsi með rauðu þaki, á Bessastöðum. Stundum varð prinsinn óskaplega þreyttur því hann fékk svo margar undirskriftir sendar að hann komst ekki yfir að lesa þær allar. En honum fannst samt gaman að vera prins og dreymdi um að hætta því aldrei. Þetta var lífið!

Bakþankar
  • «
  • 1
  • 2