Bakþankar

Konungur dýranna er ekki ljón

Sigríður Víðis Jónsdóttir skrifar
Krúttfréttir af dýrum eru klassískt fréttaefni. Konungur dýranna í íslenskum fjölmiðlum er hins vegar alls ekki ljón. Langt í frá. Það er pandabjörn.

Íslenskir fjölmiðlar bókstaflega elska pöndur. Helst ef þær eru frá Kína. Sem dæmi var desembermánuður hlaðinn fréttum af þessum glaðbeittu, kínversku krúttbollum. Allt hófst þetta með látum í byrjun mánaðar þegar tvær pöndur voru lánaðar frá Kína í dýragarð í Skotlandi en þar vona menn meðal annars til þess að þær eignist afkvæmi. Og brot af umfjölluninni hér á landi? RÚV sjónvarp: Pöndur lánaðar til Edinborgar. Stöð 2: Heimshorn, pöndur í Skotlandi. Eftirfylgni í fréttum Bylgjunnar: Pöndurnar eru orðnar vinsælar í dýragarðinum!

Stuttu fyrir jól sáum við síðan í sjónvarpsfréttum RÚV að í öðrum dýragarði, í ákveðnu héraði í Kína væru tveir pandabirnir himinlifandi með fyrstu snjókomu vetrarins (18. des). Við heyrðum einnig í aðalkvöldfréttatíma RÚV í sjónvarpi að í Skotlandi væru lánspöndurnar blessuðu frá Kína orðnar skærustu stjörnur dýragarðsins í Edinborg (23. des). Í sjónvarpsfréttunum viku síðar var aftur á móti það helst í fréttum að villt panda – í Kína, nema hvað – hefði náðst á myndband naga bein af gný (30. des).

Hafi einhver haldið að pöndur væru grænmetisætur sá hinn sami það væntanlega umræddan dag að hann væri í ruglinu. Kl 19.00 á RÚV: „Myndir hafa nú náðst í fyrsta sinn af villtri pöndu í Kína naga bein sem reyndust vera af gný." 22 mínútum síðar: „Nú hafa náðst myndir af villtri pöndu sem nagar dauða antílópu í Kína." Hálfri mínútu síðar: „Sérfræðingar fullyrða að aldrei fyrr hafði náðst myndir af villtri pöndu sem nagar dauða antilópu í Kína." Fjórum og hálfri mínútu síðar: Í fréttum var það helst: „Myndir hafa nú náðst í fyrsta sinn af villtri pöndu í Kína naga bein sem reyndust vera af gný."

Eruð þið komin með nóg af þessum kjötétandi krúttbollum? Sorrý, en þetta er bara alls ekkert búið. Við eigum nefnilega íslensku netmiðlana í desember alveg eftir. Má til dæmis bjóða ykkur þessar hér af svarthvítu félögum okkar? „Pandabjörn fékk far á viðskiptafarrými flugvélar" (Bleikt.is, 8. des), „Reyndi að selja uppstoppaða pöndu" (mbl.is, 12. des) og „Pöndur meðalið við hjartasárum" (mbl.is, 22. des).

Rétt er að hafa í huga að þetta eru einungis fréttir frá því í desember…



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.



×