Meistaradeildin

Fréttamynd

Dregið í Meistaradeildinni í dag

Dregið verður í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu í dag en athygli vakti að Arsenal og Manchester United duttu út í 16-liða úrslitum á meðan Chelsea og Liverpool tryggðu sér áframhaldandi þátttökurétt í keppninni.

Sport
Fréttamynd

Ronaldo og Tacchinardi dæmdir

Miðjumaðurinn sterki hjá Juventus, Alessio Tacchinardi, og Ronaldo hjá Real Madrid voru í dag dæmdir í tveggja leikja bann af Uefa fyrir rauðu spjöldin sem þeir fengu í viðureignum liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í síðustu viku.

Sport
Fréttamynd

Inter 2-1 yfir gegn Porto

Inter Milan frá Ítalíu er 2-1 yfir gegn Evrópumeisturum Porto í síðari leik liðann í 16 liða úrslitum Meistaradeildarinnar í knattspyrnu en leikurinn hófst kl. 19.45. Brasilíumaðurinn Adriano hefur skorað bæði mörk heimamanna.

Sport
Fréttamynd

Adriano með þrennu og Inter áfram

Inter Milan frá Ítalíu er komið í 8 liða úrslit Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu eftir 3-1 sigur á Evrópumeisturum Porto í síðari leik liðann í 16 liða úrslitunum. Brasilíumaðurinn Adriano skoraði öll mörk heimamanna.

Sport
Fréttamynd

Beckham veðjar á Chelsea

David Beckham, leikmaður Real Madrid og enska landsliðsins hallast að því að Chelsea vinni meistaradeildina í ár.  Hann segir að liðinu hafi tekist að slípast fyrr saman en nokkur átti von á og hrósar Jose Mourinho öðrum fremur fyrir velgengni liðsins í tímabilinu.

Sport
Fréttamynd

Inter yfir gegn Evrópumeisturunum

Inter Milan frá Ítalíu er komið yfir gegn Evrópumeisturum Porto, 1-0, í síðari leik liðann í 16 liða úrslitum Meistaradeildarinnar í knattspyrnu en leikurinn hófst kl. 19.45. Markið skoraði Brasilíumaðurinn Adriano strax á 6. mínútu með skoti innan úr vítateig en boltinn hafði viðkomu af Ricardo Costa í vörn gestanna.

Sport
Fréttamynd

Inter og Porto eigast við í kvöld

Í kvöld mætast Inter Milan og Porto í síðari leik liðanna í 16 liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu. Leikurinn verður sýndur beint á Sýn en hann hefst klukkan 19.45. Liðin gerðu 1-1 jafntefli í fyrri leiknum í Portúgal 23. febrúar.

Sport
Fréttamynd

Mourinho er óvinur fótboltans

Formaður dómaranefndar UEFA, evrópska knattspyrnusambandsins, Volker Roth, segir að það sé þjálfurum óbeint um að kenna þegar upp koma mál eins og það sem þvingaði Anders Frisk til að hætta dæmgæslu alfarið. Roth skellir skuldinni alfarið á Jose Mourinho þjálfara Chelsea og kallar hann "óvin fótboltans".

Sport
Fréttamynd

Pizarro vill ekki mæta Chelsea

Landsliðsmaður Perú og framherji Bayern Munchen, Claudio Pizarro, sagði í dag að hann vildi ekki mæta Chelsea í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu, en dregið verður á föstudaginn eftir viku.

Sport
Fréttamynd

Menn eru hræddir, segir Garcia

Luis Garcia, sóknarmaður Liverpool, segir að andstæðingar þeirra séu hræddir við liðið úr Bítlaborginni eftir vasklega framgöngu þess í Meistaradeildinni í vikunni.

Sport
Fréttamynd

Makalele með fæturna á jörðinni

Claude Makalele, miðjumaður Chelsea, er með fæturna á jörðinni þrátt fyrir að liðið hafi yfirstigið þá hindrun sem Barcelona var í Meistaradeildinni á þriðjudaginn.

Sport
Fréttamynd

Crespo fékk símtal frá Mourinho

Argentínumaðurinn Hernan Crespo, sem er á lánssamningi hjá AC Milan frá Chelsea, staðfesti í gær að knattspyrnustjórinn Jose Mourinho hefði hringt í sig og óskað honum til hamingju með mörkin gegn Manchester United en Crespo tryggði Milan sigur með marki í báðum leikjum gegn United og tryggði liðinu þar með sæti í 8-liða úrslitum.

Sport
Fréttamynd

Gott fyrir stuðningsmennina

Rafael Benitez, knattspyrnustjóri Liverpool, var ánægður að leikslokum er lið hans lagði Leverkusen að velli í annað sinn og tryggði sér þar með sæti í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í knattspyrnu.

Sport
Fréttamynd

Hálfleikstölur úr Meistaradeildinn

Þá er kominn hálfleikur í leikina fjóra sem fram fara í Meistaradeild Evrópu í kvöld. Á BayArena eru heimamenn í Bayer Leverkusen kominir með annan fótinn út úr keppninni, en þar eru gestirnir frá Liverpool 0-2 yfir í leikhlé...

Sport
Fréttamynd

Trezeguet kemur Juve yfir

David Trezeguet var að koma Juventus yfir gegn Real Madrid á Stadio Delle Alpi í Tórínó í Meistaradeildinni í kvöld, en hann hafði áður komið inná sem varamaður fyrir Alessandro Del Piero. Staðan er því 1-1 samanlagt úr leikunum tveimur og ef það verður reyndin eftir 90 mínútur verður framlengt.

Sport
Fréttamynd

Arsenal úr leik

Arsenal er úr leik í Meistaradeild Evrópu þetta árið þrátt fyrir 1-0 sigur gegn Bayern Munchen á Higbury í kvöld. Bayern vann fyrri leikinn 3-1 í þýskalandi og því 3-2 samanlagt. Það var Thierry Henry sem skorað i mark Arsenal í kvöld.

Sport
Fréttamynd

Garcia skorar aftur

Luis Garcia hefur komið Liverpool í 2-0 á BayArena, en hann skoraði fyrst á 28. mínútu og svo aftur á þeirri 32. Steven Gerrard tók hornspyrnu sem Igor Biscan skallaði að marki, en Garcia kom fæti í boltann og stýrði honum framhjá Jorg Butt sem hefði annars líklega varið skallann. Spánverjinn hefur nú gert þrjú mörk í leikjunum tveimur gegn Leverkusen.

Sport
Fréttamynd

Henry afsalar sér ábyrgð

Franski snillingurinn Thierry Henry hefur gefið það út að það séu fleiri menn en hann í Arsenal liðinu og að hann verði ekki einn dreginn til ábyrgðar ef illa fer gegn Leverkusen í kvöld.

Sport
Fréttamynd

Ferguson hrósar Milan

Sir Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Manchester United var auðmjúkur eftir tap sinna manna fyrir AC Milan á Ítalíu í gær.

Sport
Fréttamynd

Dudek og Hamann byrja

Rafael Benitez hefur gert þrjár breytingar á liði sínu, sem mætir Bayer Leverkusen í Meistaradeild Evrópu í kvöld, frá því í tapleiknum gegn Newcastle á laugardaginn.

Sport
Fréttamynd

Mourinho fagnaði

Jose Mourinho fagnaði sigri Chelsea á Barcelona í gær með meiri tilþrifum en þegar hann vann sjálfan úrslitaleikinn með Porto í fyrra

Sport
Fréttamynd

Owen á bekknum hjá Real gegn Juve

Michael Owen er á varamannabekknum í kvöld er Real Madrid sækir Juventus heim á Stadio Delle Alpi í Meistaradeild Evrópu í kvöld.Thomas Gravesen og David Beckham eru í byrjunarliðinu ásamt snillingum eins og Luis Figo og Zinedine Zidane.

Sport
Fréttamynd

Garcia kemur Liverpool yfir

Luis Garcia var rétt í þessu að koma Liverpool yfir gegn Bayer Leverkusen á BayArena og staðan því orðin markið og þar var það Garcia sem rak fótinn í knöttinn og skoraði.  Leverkusen þarf núna að skora fjögur mörk til að komast áfram.

Sport
Fréttamynd

Arsenal komið yfir

Thierry Henry er búinn að koma Arsenal yfir gegn Bayern Munchen á Highbury, staðan þar orðin 1-0. Arsenal þarf þó ennþá annað mark til að komast áfram eftir 3-1 tap í þýskalandi.

Sport
Fréttamynd

Juventus sló Real Madrid út

Juventus frá Ítalíu sló rétt í þessu út Real Madrid frá Spáni í Meistaradeild Evrópu. Staðan að loknum venjulegs leiktíma var 1-0 fyrir Juve, en þar sem Real sigraði í fyrri leiknum einnig 1-0 þurfti að framlengja.

Sport
Fréttamynd

Crespo vill mæta Chelsea

Argentínumaðurinn Hernan Crespo hefur viðurkennt að draumur hans sé að mæta Chelsea í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar. 

Sport
Fréttamynd

PSV áfram, Monaco situr eftir

Monaco, sem í fyrra spilaði í úrslitum Meistaradeildarinnar, er úr leik í ár eftir 0-2 tap gegn PSV Eindhoven á Stade Louis II í Monaco í kvöld og 3-0 samanlagt. Jan Vennegoor of Hesselink kom PSV yfir á 27. mínútu og DaMarcus Beasley innsiglaði sigurinn tuttugu mínútum fyrir leikslok.

Sport
Fréttamynd

Bergkamp með Henry frammi

Dennis Bergkamp mun spila með Thierry Henry í fremstu víglínu í leiknum mikilvæga gegn Bayern Munchen í Meistaradeild Evrópu í kvöld, en eftir 3-1 tap í þýskalandi þarf Arsenal að vinna með tveggja marka mun í kvöld, hugsanlega þriggja ef Bayern skorar mark eða mörk.

Sport
Fréttamynd

Kewell úti

Liverpool hefur staðfest að Harry Kewell mun ekki leika með liðinu gegn Bayern Leverkusen i Meistaradeildinni í kvöld vegna meiðsla.

Sport