Baugsmálið

Fréttamynd

Jónína leitaði til Björgólfs

Ásgeir Friðgeirsson, upplýsingafulltrúi Björgólfs Guðmundssonar, formanns bankaráðs Landsbanka Íslands, segir að Björgólf reki ekki minni til einstakra samræðna við Jónínu Benediktsdóttur.

Innlent
Fréttamynd

Vísar fullyrðingum Jónínu á bug

Og Vodafone vísar fullyrðingum Jónínu Benediktsdóttur, sem fram komu í hádegisfréttum Bylgjunnar um meðferð á tölvupósti, alfarið á bug. Hún hafi með orðum sínum vegið harkalega að fyrirtækinu með ómaklegum hætti, auk þess sem hún ásaki starfsmenn fyrirtækisins um brot á lögum. Fyrirtækið muni því skoða réttarstöðu sína og starfsmanna frekar. </font /></font />

Innlent
Fréttamynd

Allir sitji sem fastast

Björn Bjarnason dómsmálaráðherra skrifar í pistli á heimasíðu sinni að hann sjái ekki nokkuð athugavert við aðkomu Styrmis Gunnarssonar að undirbúningi Baugsmálsins. Engin ástæða sé fyrir Styrmi, Björn sjálfan, eða nokkurn annan ef því er að skipta, til að segja sig frá störfum.

Innlent
Fréttamynd

Bauð mér ekki í mat

"Ég hef kafað djúpt í huga minn en man ekki eftir að Jónína Benediktsdóttir hafi sýnt mér nein gögn um þetta mál," segir Össur Skarphéðinsson, þingmaður Samfylkingarinnar.

Innlent
Fréttamynd

Bauð mér ekki í mat

"Ég hef kafað djúpt í huga minn en man ekki eftir að Jónína Benediktsdóttir hafi sýnt mér nein gögn um þetta mál," segir Össur Skarphéðinsson, þingmaður Samfylkingarinnar.

Innlent
Fréttamynd

Skaðabótaskylda lögmanns

"Ef lögmaður sýnir öðrum gögn án heimildar skjólstæðingsins þá er það trúnaðarbrot sem í sjálfu sér getur leitt til skaðabótaskyldu lögmannsins og jafnvel verið brot á hegningarlögum eftir atvikum," segir Jón Magnússon hæstaréttarlögmaður.

Innlent
Fréttamynd

Vegið harkalega að fyrirtækinu

Fjarskiptafyrirtækið Og Vodafone ætlar að skoða réttarstöðu sína í kjölfar ummæla Jónínu Benediktsdóttur á Bylgjunni í gær um að fyrirtækið tengdist ólögmætri dreifingu persónulegra gagna viðskiptavina.

Innlent
Fréttamynd

Var ekki gerandi

"Til mín leitar alls konar fólk með alls konar erindi. Ég tjái mig ekki um innihald einkafunda. Ég hef aldrei haft áhrif á framvindu málsins og hef aldrei verið gerandi," segir Sigmundur Ernir Rúnarsson, fréttastjóri Stöðvar 2. 

Innlent
Fréttamynd

Formaðurinn veitti ekki viðtal

Stefán Pétur Eggertsson, formaður stjórnar Árvakurs, útgáfufélags Morgunblaðsins, vildi ekki veita fréttastofu Stöðvar 2 viðtal þegar eftir því var leitað í dag en hann sagðist telja að Styrmir Gunnarsson ritstjóri nyti fyllsta trausts stjórnarinnar.

Innlent
Fréttamynd

Úrslitaáhrif fjármálaráðherra?

Styrmir Gunnarsson, ritstjóri Morgunblaðsins, og Jónína Benediktsdóttir sendu gögn varðandi Baug sem þau höfðu fengið frá Jóni Geraldi Sullenberger til tollstjórans í Reykjavík og til skattrannsóknarstjóra. Hann aðhafðist ekki frekar, en svo er að sjá sem Styrmir hafi búist við að fjármálaráðherra hefði úrslitaáhrif á það hvort farið yrði í skattrannsókn.

Innlent
Fréttamynd

Ræddi við Ingibjörgu og Stefán Jón

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, staðfesti við fréttastofuna í dag að Jónína Benediktsdóttir hafi sagt sér miður fagrar sögur af forsvarsmönnum Baugs, líkt og Jónína greindi frá í hádegisfréttum Bylgjunnar, og að Stefán Jón Hafstein borgarfulltrúi hafi einnig verið viðstaddur.

Innlent
Fréttamynd

Var trúnaðarsamtal

"Ég leit á þetta samtal sem trúnaðarsamtal," segir Stefán Jón Hafstein, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar.

Innlent
Fréttamynd

Jón Steinar sendir áfram gögn

Jón Steinar Gunnlaugsson, lögmaður Jóns Geralds Sullenberger í Baugsmálinu, sendi ritstjóra Morgunblaðsins gögn í málinu án vitundar eða samþykkis Jóns Geralds. Hafi hann gert það er það brot á siðareglum lögmanna.

Innlent
Fréttamynd

Var ekki gerandi

"Til mín leitar alls konar fólk með alls konar erindi. Ég tjái mig ekki um innihald einkafunda. Ég hef aldrei haft áhrif á framvindu málsins og hef aldrei verið gerandi," segir Sigmundur Ernir Rúnarsson, fréttastjóri Stöðvar 2.

Innlent
Fréttamynd

Þurfti rétta boðleið

"Eins og áður hefur komið fram bauð Jónína til matar á heimili sínu. Hún ræddi þar um Baug og ýmsa stjórnunarhætti innan fyrirtækisins," segir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir.

Innlent
Fréttamynd

Skaðabótaskylda lögmanns

"Ef lögmaður sýnir öðrum gögn án heimildar skjólstæðingsins þá er það trúnaðarbrot sem í sjálfu sér getur leitt til skaðabótaskyldu lögmannsins og jafnvel verið brot á hegningarlögum eftir atvikum," segir Jón Magnússon hæstaréttarlögmaður.

Innlent
Fréttamynd

Bárust frá nafnlausum sendanda

Sigurjón M. Egilsson, fréttaritstjóri Fréttablaðsins, segir að tölvubréfin sem blaðið hafi byggt umfjöllun sína um helgina á hafi borist honum frá nafnlausum sendanda. Hann hafi rætt við lögmenn blaðsins og í framhaldi af því tekið ákvörðun um að birta fréttirnar.

Innlent
Fréttamynd

Þjófnaður á póstinum verður kærður

Jónína Benediktsdóttir segir að þjófnaður á persónulegum tölvupósti hennar verði kærður til lögreglu í dag. Fyrirtækið Og Vodafone hýsi tölvupóst hennar en hún kunni engar skýringar á því hvernig hann komst í hendur fjölmiðla.

Innlent
Fréttamynd

Jónína leitaði til Björgólfs

Ásgeir Friðgeirsson, upplýsingafulltrúi Björgólfs Guðmundssonar, formanns bankaráðs Landsbanka Íslands, segir að Björgólf reki ekki minni til einstakra samræðna við Jónínu Benediktsdóttur. "

Innlent
Fréttamynd

Sendu Baugsgögn til skattsins

Styrmir Gunnarsson ritstjóri Morgunblaðsins og Jónína Benediktsdóttir komu gögnum um Baug til skattayfirvalda. Jón Gerald Sullenberger, sem sendi þeim gögnin, segist ekki hafa vitað að þau hefðu verið send áfram. </font /></b />

Innlent
Fréttamynd

Engin viðbrögð frá Árvakri

Ekki fengust viðbrögð frá aðalstjórn Árvakurs, útgáfufélags Morgunblaðsins, við fréttum af aðkomu ritstjóra blaðsins að Baugsmálinu þegar eftir því var leitað í gær. Halldór Þór Halldórsson, ritari stjórnarinnar, sagðist ekki hafa getað kynnt sér málið og vildi því ekki tjá sig um það að svo stöddu. 

Innlent
Fréttamynd

Ræddi aðeins hæfni Jóns Steinars

Kjartan Gunnarsson, framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins, segist hafa rætt við Styrmi Gunnarsson, ritstjóra Morgunblaðsins, um hæfi og hæfni Jóns Steinars Gunnlaugssonar til þess að taka að sér mál Jón Geralds Sullenbergers, en ekki um nein efnisatriði ágreinings Baugs og Jóns Geralds. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem Kjartan sendi frá sér nú í morgun.

Innlent
Fréttamynd

Jón Steinar kom að Baugsmáli í maí

Kjartan Gunnarsson segist hafa veitt Styrmi Gunnarssyni álit sitt á hæfi Jóns Steinars Gunnlaugssonar sem lögmanns Jóns Geralds um mánaðamót júní og júlí 2002. Samskipti Jóns Steinars og Jóns Geralds hófust hins vegar í maí sama ár. </font /></b />

Innlent
Fréttamynd

Óttaðist að verða sakborningur

Styrmir Gunnarsson, ritstjóri Morgunblaðsins, Jón Steinar Gunnlaugsson, núverandi hæstaréttardómari, og Kjartan Gunnarsson, framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins, funduðu um kæru Jóns Geralds Sullenberger á hendur Baugi. Hik var á Jóni Gerald Sullenberger við að leggja fram kæru því hann óttaðist að verða sakborningur sjálfur.

Innlent
Fréttamynd

Hæfi Jóns Steinars vafi eða ekki?

Styrmir Gunnarsson segir að honum hafi orðið ljóst hvílíkur afburða lögfræðingur Jón Steinar Gunnlaugsson sé þegar hann var lögmaður Morgunblaðsins. Það má því spyrja hvers vegna hann hafi þurft að funda með Kjartani Gunnarssyni til að spyrja um hæfi og hæfni Jóns Steinars sem lögfræðings.

Innlent
Fréttamynd

Jón Steinar tjáir sig ekki

Jón Steinar Gunnlaugsson hæstaréttardómari sagði í samtali við fréttastofu í dag að það væri alveg sama hversu mikið hann yrði spurður um umfjöllun <em>Fréttablaðsins </em>í morgun, hann myndi ekki tjá sig um það. Jónína Benediktsdóttir svaraði ekki skilaboðum.

Innlent
Fréttamynd

Styrmir svarar í Morgunblaðinu

Styrmir Gunnarsson, ritstjóri Morgunblaðsins, kaus að tjá sig ekki um umfjöllum Fréttablaðsins í tengslum við Baugsmálið þegar fréttastofa Stöðvar 2 og Bylgjunnar ræddi við hann í morgun. Hann vísaði í grein sem hann er að skrifa í sunnudagsútgáfu <em>Morgunblaðsins</em>.

Innlent
Fréttamynd

Skiptir engu fyrir framvinduna

Arnar Jensson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá Ríkislögreglustjóra, segir þær upplýsingar um tildrög kærunnar í Baugsmálinu sem komu fram í Fréttablaðinu dag engu skipta fyrir lögregluna eða framvindu málsins.  Ingibjörg Sólrún Gísladóttir vill ekkert segja um málið að sinni.

Innlent
Fréttamynd

Sagt í gamansemi segir Styrmir

Styrmir Gunnarsson, ritstjóri Morgunblaðsins, segir orðalag í tölvubréfi sínu til Jónínu Benediktsdóttur um að „fingraför Morgunblaðsins“ skuli þurrkuð út, hafa verið notað í gamansemi. Þetta er meðal þess sem kemur fram í grein í sunnudagsblaði Morgunblaðsins sem var að koma úr prentsmiðjunni.

Innlent
Fréttamynd

Aðkoma Styrmis er áfall

"Það kemur ekki á óvart að Kjartan og Jón Steinar áttu hlut að máli, en það að Styrmir skuli hafa verið með í ráðum og stýrt atburðarásinni er áfall," segir Jón Ásgeir Jóhannesson, forstjóri Baugs, um fréttir af aðkomu Styrmis Gunnarssonar, ritstjóra Morgunblaðsins, að Baugsmálinu.

Innlent