Innlendar

Fréttamynd

Auðveldara að þjálfa stráka en stelpur

Stjarna helgarinnar í blakinu er Elsa Sæný Valgeirsdóttir, en hún varð tvöfaldur bikarmeistari í gær. Fyrst sem þjálfari karlaliðs HK og síðan sem leikmaður kvennaliðs HK.

Sport
Fréttamynd

Telma fékk brons í Malmö

Karatekonan Telma Rut Frímannsdóttir nældi sér í bronsverðlaun í gær á Swedish Karate Open sem fram fer í Malmö. Telma Rut keppir í mínus 61 kg flokki. Í fyrstu viðureign tapaði Telma fyrir Stephanie Kaup frá svíþjóð sem endaði með því að vinna flokkinn og því fékk Telma uppreisnaglímu og tækifæri til að keppa um 3ja sætið.

Sport
Fréttamynd

Actavis orðinn aðalstyrktaraðili Ásdísar

Actavis á Íslandi og Ásdís Hjálmsdóttir spjótkastari og lyfjafræðingur hafa gert með sér samkomulag um að Actavis verði aðalstyrktaraðili Ásdísar fram yfir Ólympíuleikana í Ríó í Brasilíu árið 2016.

Sport
Fréttamynd

Háspenna lífshætta fyrir norðan

SA Víkingar og Björninn mætast í kvöld í fyrstu viðureign liðanna í úrslitakeppni Íslandsmótsins í íshokkí norðan heiða. Það lið sem fyrr vinnur þrjá leiki tryggir sér Íslandsmeistaratitilinn.

Sport
Fréttamynd

Hagræðing úrslita

Íslenskar getraunir standa fyrir málþingi um hagræðingu úrslita í íþróttahreyfingunni í höfuðstöðvum KSÍ miðvikudaginn 20. mars frá 12-14.

Sport
Fréttamynd

Nú er röðin komin að öðrum

Guðmundur Eggert Stephensen vann sinn 20. Íslandsmeistaratitil í röð í einliðaleik í borðtennis í gær. Hann segir að nú sé mál að linni og kominn tími á að leyfa öðrum að vinna. Fyrsti titilinn 11 ára gamall.

Sport
Fréttamynd

Guðmundur og Eva unnu þrefalt

Guðmundur Eggert Stephensen og Eva Jósteinsdóttir unnu bæði þrefalt á Íslandsmótinu í borðtennis sem lauk í íþróttahúsi TBR í dag.

Sport
Fréttamynd

Mitt síðasta Íslandsmót í bili

Guðmundur Eggert Stephensen borðtenniskappi náði þeim einstaka árangri í dag að vinna sinn 20. Íslandsmeistaratitil í röð í einliðaleik.

Sport
Fréttamynd

Aníta komst ekki í úrslit

Hlauparinn stórefnilegi, Aníta Hinriksdóttir, náði ekki að komast í úrslit í 800 metra hlaupi á EM innanhúss.

Sport
Fréttamynd

Ásgeir í áttunda sæti á EM

Skotfimikappinn Ásgeir Sigurgeirsson erndaði í áttuna sæti á Evrópumeistaramótinu sem fram fer í Óðinsvéum í Danmörku. Ásgeir keppti í loftskammbyssu.

Sport
Fréttamynd

Magnaður árangur hjá Gunnlaugi

Hlauparinn Gunnlaugur Júlíusson náði ótrúlegum árangri í sólarhringshlaupi sem fram fór í Ratipharm Arena í Espoo í Finnlandi.

Sport
Fréttamynd

Haraldur Nelson: Svo stoltir að við erum pínu montnir

Eins og alþjóð veit sigraði Gunnar Nelson andstæðing sinn í blönduðum bardagalistum (MMA) um síðustu helgi, en færri vita að Árni Ísaksson ver veltivigtartitil sinn hjá Cage Contender bardagakeðjunni gegn Ali Arish í kvöld.

Sport
Fréttamynd

Árni og Bjarki berjast á Írlandi í kvöld

Árni Ísaksson ver veltivigtartitil sinn gegn Ali Arish hjá írsku bardagakeðjunni Cage Contender í kvöld. Árni vann titilinn 20. október síðastliðinn þegar hann sigraði Wayne Murrie með rothöggi í annarri lotu og varð þar með veltivigtarmeistari Cage Contender, sem er ein stærsta bardagakeðja Evrópu.

Sport
Fréttamynd

Aníta fékk þrjú gull

ÍR-ingurinn Aníta Hinriksdóttir stal senunni á Meistaramóti Íslands sem fram fór í Laugardalshöll um helgina.

Sport
Fréttamynd

Gunnar Nelson í búrinu | Myndir

Gunnar Nelson undirbýr sig nú af krafti fyrir bardagann gegn Jorge Santiago frá Brasilíu í UFC-keppninni sem fram fer á Wembley næsta laugardag. Gunnar hefur æft stíft með keppnisliði Mjölnis undanfarna mánuði.

Sport
Fréttamynd

Styrkveitingar efldar hjá ÍSÍ

Úthlutað var í gær úr Afrekssjóði ÍSÍ og Styrktarsjóði ungra og framúrskarandi efnilegra íþróttamanna fyrir árið 2013. Styrkirnir til afreksíþróttamanna hækka auk þess sem áherslum var breytt í styrkveitingunni.

Sport
Fréttamynd

Formaður ÍSÍ segir vitlaust gefið á Íslandi

Þrátt fyrir aukið framlag ríkissjóðs í Afrekssjóð ÍSÍ á íslenskt afreksíþróttafólk enn langt í land í baráttu sinni fyrir bættum kjörum. Þetta kom fram á blaðamannafundi ÍSÍ í gær en þá var tilkynnt um úthlutanir úr Afrekssjóðnum.

Sport