Viðskipti innlent

Sýndi mjúka hlið með því að fá sér hund

ingvar haraldsson skrifar
Katrín hafði áður starfað í fimm ár hjá N1.
Katrín hafði áður starfað í fimm ár hjá N1. fréttablaðið/stefán
Katrín M. Guðjónsdóttir var í síðustu viku ráðin markaðsstjóri Skeljungs. Katrín hefur mikla reynslu af markaðsmálum en síðustu tvö ár var hún markaðsstjóri Innness og á árunum 2008 til 2013 starfaði hún sem markaðsstjóri N1. Katrín segir að næstu misseri muni felast í að móta framtíðarskref í markaðsmálum og stefnu vörumerkja Skeljungs, á borð við Shell og Orkuna.

Katrín segir sín helstu áhugamál vera útivist, samveru með fjölskyldu og vinum og ferðalög en um helgina gekk hún Fimmvörðuhálsinn.

Hún segist vera dugleg að fylgja eiginmanni sínum á veiðiferðum. „Ég er aðstoðarmanneskja veiðimannsins og er mjög stolt af því. Ég geri veiðimanninn betri, sem er þá eiginmaðurinn. Ég lít á það sem mjög mikilvægt hlutverk.“

Katrín segir það hafa komið mörgum á óvart þegar hún fékk sér Cocker Spaniel-hund fyrir fjórum árum. „Samstarfsfólki mínu á sínum tíma fannst það mjög út úr karakter að ég væri að fá mér hund. Þarna var ég að sýna mjög mjúka hlið og frekar óvænta miðað við annir. Maðurinn minn starfar hjá Marel og var að ferðast mikið erlendis. Þannig að það var gert svolítið grín að því að ég væri í krefjandi starfi og allt á fullu og að ég væri að fá mér hvolp,“ segir Katrín kímin. Nú sé helst skotið á Katrínu fyrir að þykja jafn vænt um hundinn og börnin sín.

Katrín lauk MBA-námi í vor samhliða fullu starfi hjá Innnesi. „Það sem hefur einkennt frítíma minn síðustu tvö ár var MBA-námið svo ég var kannski ekki mjög mikið að gera annað,“ segir hún. Hún segist hafa verið komin stutt í náminu þegar hún var komin í allt markaðsefni fyrir námið. „Vinir mínir gerðu dálítið grín að mér því það einkennir mig svolítið að þegar ég geri eitthvað er ég „all in“ í því. Einn vinur minn sem er svolítill frasakóngur sagði: „Katrín fór í MBA-námið og hún gleypti það“.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×