Viðskipti erlent

Svona brugðust markaðir við sigri Trump

Sæunn Gísladóttir skrifar
Donald Trump verður 45. forseti Bandaríkjanna.
Donald Trump verður 45. forseti Bandaríkjanna. Vísir/Getty
Markaðir heimsins brugðust í fyrstu illa við óvæntum fréttum af sigri Donalds Trump í forsetakosningum Bandaríkjanna í gær. Hlutabréf hrundu víða í Asíu, og um morguninn í Evrópu. Hlutabréf tóku þó við sér aftur í Evrópu. Gengi dalsins og mexíkóska pesósins veiktist.

Gengi pesósins gagnvart bandaríkjadal náði sögulegum lægðum, en síðar rættist úr því. Sigur Trumps felur í sér mikla óvissu sem getur haft áframhaldandi neikvæð áhrif á hlutabréfamarkaði og alþjóðaviðskipti að mati sérfræðinga. Sigur Trumps virðist í fyrstu hafa haft lítil áhrif á hlutabréfamarkað á Íslandi. Gengi bandríkjadals veiktist hins vegar gagnvart krónunni og hefur ekki verið lægra síðan í október 2008.

Viðskiptastríð gæti hafist við KínaVísir/AFP
Hrun á Asíumarkaði

Í kjölfar niðurstöðu kosninganna hrundu hlutabréf í Asíu. Nikkei-vísitalan í Japan lækkaði mest, eða um 5,36 prósent, aðfaranótt miðvikudags. Shanghai Composite-vísitalan lækkaði um 0,62 prósent og Hang Sen í Hong Kong um 2,16 prósent.

The Guardian greinir frá því að 35 milljarðar dollara, jafnvirði 3.860 milljarða íslenskra króna, hafi þurrkast út af hlutabréfamarkaðnum í Ástralíu. Líklega má rekja lækkunina til þess að Trump hefur talað um að leggja álag á innfluttar vörur frá Kína og að refsa fyrirtækjum sem flytja störf til Asíu.

Fríverslun í uppnámi

Eftir kjör Trumps ríkir nú mikil óvissa varðandi framtíð alþjóðaviðskipta að mati sérfræðinga.

CNN Money hefur eftir Lim Say, yfirmanni fjárfestinga hjá DBS-bankanum í Singapúr, að alþjóðahagkerfið, alþjóðaviðskipti og fjármálamarkaðir standi nú frammi fyrir mikilli óvissu þar sem nýr leiðtogi Bandaríkjanna vill færa landið nær aðskilnaðarstefnu. Margir óttast að viðskiptastríð muni brjótast út.

AGS, OECD og fleiri stofnanir hafa nú þegar varað við rýrum vexti í alþjóðaviðskiptum á árinu, og áhrif af Brexit, ákvörðun Breta um að yfirgefa Evrópusambandið, bættust ofan á áhyggjur stofnananna.

Sérfræðingar vara við áætlunum Trumps um að rifta eða endurrita NAFTA-fríverslunarsamninginn við Mexíkó og Kanada. Þeir telja að það muni hafa mjög truflandi áhrif.

Mikill usli var á mörkuðum í Asíu.Vísir/AFP
Markaðir jöfnuðu sig í Evrópu

Gengi hlutabréfa í Evrópu hrundi í gærmorgun. Ástæðan er talin vera óljós afstaða Trumps til efnahagsmála. Um morguninn lækkað DAX-vísitalan í Þýskalandi um næstum þrjú prósent, en um eftirmiðdaginn í gær hafði hún hækkað um 0,4 prósent.

IBEX-vísitalan á Spáni lækkaði um nærri fjögur prósent en hafði hækkað um 1,3 prósent um eftirmiðdaginn. FTSE 100 í Bretlandi lækkað um tvö prósent snemma morguns en hafði svo hækkað um 0,4 prósent síðdegis í gær.

Pesóinn í Mexíkó tók dýfu

Frá því að úrslit forsetakosninganna lágu fyrir og fram til eftirmiðdagsins í gær lækkaði gengi pesósins, gjaldmiðils Mexíkó, gagnvart bandaríkjadal allverulega. Pesóinn lækkaði um tólf prósent, þegar ljóst var að Trump væri sigurvegari kosninganna um klukkan sex um nóttina, en hækkaði svo á ný. Um eftirmiðdaginn í gær hafði gengi hans lækkað um 8,6 prósent. 

Líklega má rekja lækkunina til þess að Trump hefur lengi heitið því að reisa vegg á landamærum ríkjanna og láta Mexíkó borga fyrir smíðina, og skattleggja peninga sem innflytjendur senda til fjölskyldna.

Kauphöll Íslands
Lítil áhrif á hlutabréf á Íslandi

Gengi hlutabréfa á Íslandi lækkaði, rétt eins og í öðrum löndum, snemma í gærmorgun, um 1,3 prósent. Lækkanirnar náðust þó að mestu til baka. Úrvalsvísitalan lækkaði um 0,76 prósent í gær og gengi hlutabréfa í öllum nema fimm fyrirtækjum á Aðallista Kauphallarinnar lækkaði.

„Þetta er ekki svo óvenjulegur dagur á íslenska markaðnum. Við erum með 45 daga á árinu þar sem lækkunin hefur verið meiri og svo eru viðskiptin eiginlega í meðaltali. Þetta er ótrúlega venjulegur dagur þegar öllu ert á botninn hvolft,“ segir Magnús Harðarson, forstöðumaður viðskiptasviðs Kauphallar Íslands.

„Það kannski hjálpar að við opnum aðeins seinna en erlendu markaðirnir. Ef maður ber saman Nordic 40 vísitöluna og úrvalsvísitöluna, þá sér maður að þegar norræna vísitalan opnar fer hún niður um næstum þrjú prósent, en þeir eru komnir eiginlega á sama stað og við þegar við opnuðum klukkutíma síðar.“

Miðgengi Bandaríkjadals gagnvart krónunni hafði í gærmorgun ekki verið lægra síðan í október 2008. Gengið hækkaði þó aftur yfir daginn.

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu


Tengdar fréttir

Pesóinn hefur hríðfallið

Gengi mexíkóska pesósins gagnvart Bandaríkjadal hefur lækkað um tæplega níu prósent í dag.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×