Viðskipti innlent

Svipmynd Markaðarins: Tónlistarnörd sem grúskar í Spotify

Haraldur Guðmundsson skrifar
Ólafur Teitur Guðnason, aðstoðarmaður ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra.
Ólafur Teitur Guðnason, aðstoðarmaður ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra. Vísir/GVA
Ólafur Teitur Guðnason var ráðinn aðstoðarmaður Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, í janúarlok. Þá hafði hann unnið sem framkvæmdastjóri samskiptasviðs Rio Tinto á Íslandi sem rekur álverið í Straumsvík frá árinu 2008. Þar áður var hann fréttamaður hjá RÚV, DV og Viðskiptablaðinu og síðar fjölmiðlafulltrúi fjárfestingarbankans Straums-Burðaráss.

Í samtali við Markaðinn segir Ólafur, sem fæddur árið 1973, að hann hafi gaman af því að grúska í tónlist. Gerði hann einmitt níu útvarpsþætti um sögu hljómsveitarinnar Pink Floyd fyrir Rás 2 eins og kom fram í tilkynningu um ráðningu hans í starf aðstoðarmanns ráðherra. Ólafur Teitur er stúdent frá Verzlunarskóla Íslands og með BA-próf í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands en tók hluta námsins við Albert-Ludwigs háskólann í Freiburg í Þýskalandi. Eiginkona hans heitir Engilbjört Auðunsdóttir og er viðskiptafræðingur en þau eiga tvo syni.

Hvað hefur komið þér mest á óvart það sem af er ári?

Það að mér skyldi vera boðið nýtt starf.

Hvaða app notarðu mest?

Spotify og Facebook.

Hvað gerir þú í frístundum þínum?

Grúska í tónlist, viða að mér nýju efni, flokka það, merki og sortera og bý til lagalista. Það er örlítill bókasafnsfræðinörd í mér þótt ég geti líka verið óskipulagður.

Hvernig heldur þú þér í formi?

Eftir tveggja áratuga fullkomið hreyfingarleysi og keðjureykingar veiktist ég nokkuð harkalega sem var kærkomið spark í rassinn. Núna fer ég því nokkuð reglulega í ræktina þar sem ég bæði skokka og lyfti auk þess sem ég reyni að ganga sem mest.

Hvernig tónlist hlustar þú á? 

Lengi vel sótti ég mest í þunga hádramatík á borð við Pink Floyd, Sigur Rós og Radiohead en í seinni tíð legg ég meira upp úr góðum takti og „grúvi“, sem getur verið allt frá fönki upp í raftónlist. Ég hef í næstum fjögur ár gert mánaðarlega lagalista á Spotify til að halda utan um það sem ég er að uppgötva hverju sinni.

Ertu í þínu draumastarfi?

Ég er nýbyrjaður í nýju starfi og það leggst mjög vel í mig; algjör draumur!






Fleiri fréttir

Sjá meira


×