Lífið

Svæfir barnið á 40 sekúndum með notkun servíettu

Atli Ísleifsson skrifar
Seth litli sefur værum blundi.
Seth litli sefur værum blundi.
Ástralskur faðir hefur birt myndband af hvernig hann svæfir son sinn á örskömmum tíma með notkun servíettu.

Sydney-búinn Nathan Dailo birti myndbandið á YouTube þar sem sjá má hvernig augnlok þriggja ára sonar hans Seth verða þyngri og þyngri allt þar til drengurinn sefur værum blundi.

Foreldrar sem eiga í vandræðum með að svæfa ung börn sín ættu því mögulega að prófa þessa aðferð, en fjölmargir hafa skrifað athugasemdir við myndbandið þar sem þeir segja aðferðina einnig hafa virkað á þeirra börnum.

Dailo birti myndbandið á YouTube fyrir tveimur og hálfri viku og hafa fleiri hundruð þúsund manns horft á það síðan.

Fylgjast má með Sith litla sofna í myndbandinu að neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×