Lífið

Sígó eftir hvern hring og undir lokin þurfti að lyfta Mari upp úr stólnum en hún hljóp af stað

Stefán Árni Pálsson skrifar
Mari er andlega sterkari en flest allir.
Mari er andlega sterkari en flest allir.

Í gærkvöldi var ný heimildarmynd um ofurhlauparann Mari Järsk frumsýnd á Stöð 2.

Mari kom eins og stormsveipur inn í íslenska hlaupasenu og vakti þjóðarathygli þegar hún hljóp tæpa 300 kílómetra í svokölluðu bakgarðshlaupi þar sem hún kveikti sér í sígarettu eftir hvern einasta hring.

Sigrún Ósk Kristjánsdóttir fylgir Mari eftir í mikilvægasta hlaup hennar til þessa í Þýskalandi, heimsækir eistneska SOS barnaþorpið sem hún ólst upp í og kafar ofan í magnaða sögu þessarar ótrúlegu íþróttakonu í myndinni.

Hlaupið í Þýskalandi síðasta sumar reyndi heldur betur á en Mari var með heljarinnar aðstoðarteymi á svæðinu. Konur sem voru ávallt reiðubúnar að taka á móti henni eftir hvern hring. Þar beið alltaf næring, nudd og sígó.

Í bakgarðshlaupi hleypur hver hlaupari 6,7 kílómetra og hefur til þess eina klukkustund. Ef þú kemur fyrr í mark, þýðir það einfaldlega að þú færð meiri hvíld. Mari var ekki í miklum vandræðum með fyrstu hundrað kílómetrana en eftir það fór að bera á ákveðnum vandræðum. Hún var komin með í magann og ældi til að mynda oft á tíðum á miðjum hring.

En alltaf fór hún aftur af stað á heila tímanum og til að mynd þurfti einu sinni að bera hana að rásmarkinu, en samt hljóp hún af stað.

Hér að neðan má sjá brot úr myndinni sem var á dagskrá í gærkvöldi. Hægt er að sjá myndina í heild sinni í frelsiskerfi Stöðvar 2 og á Stöð 2+ en segja má að ævi Mari hafi verið erfiðari en hjá flestum. 

Klippa: Sígó eftir hvern hring og undir lokin þurfti að lyfta Mari upp úr stólnum en hún hljóp af stað





Fleiri fréttir

Sjá meira


×