Viðskipti innlent

Stór dagur í lífi fasteignasala: Kaupir heilsíðuauglýsingu og eignast barn

Kjartan Atli Kjartansson skrifar
Hér er auglýsingin sem birtist í Fréttablaðinu í morgun.
Hér er auglýsingin sem birtist í Fréttablaðinu í morgun.
Hannes Steindórsson fasteignasali birti fermingamynd af sjálfum sér í heilsíðuauglýsingu í Fréttablaðinu í dag.

Auk myndarinnar birtir Hannes tilvitnun, líklega í sjálfan sig: „Ég ætla að verða fasteignasali þegar ég verð stór.“

Í nótt eignaðist kona Hannesar, Lísa María Markúsdóttir, svo barn og er Hannes því frá vinnu næstu tvær vikurnar. Gunnar Valsson, samstarfsmaður Hannesar hjá Remax Lind, svarar símanum hans og segir fólk strax byrjað að hringja eftir að auglýsingin birtist.

Í auglýsingunni segist Hannes einnig vitna í viðskiptavini sína og þar fær hann góð meðmæli.

Hannes er þekktur sem fasteignasali fræga fólksins. Fjölmiðlar hafa fjallað um hann áður og sagt frá þeim þekktu einstaklingum sem hann hefur selt eignir fyrir og má þar nefna Völu Matthíasdóttur, Björn Steinbekk og Björn Hlyn Haraldsson.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×