Viðskipti innlent

Stím-málinu áfrýjað til Hæstaréttar

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Lárus Welding og Jóhannes Baldursson voru báðir dæmdir í fangelsi í Stím-málinu í héraði.
Lárus Welding og Jóhannes Baldursson voru báðir dæmdir í fangelsi í Stím-málinu í héraði. vísir
Búið er að áfrýja dómi Héraðsdóms Reykjavíkur í Stím-málinu til Hæstaréttar. Dómur féll í málinu í Héraðsdómi Reykjavíkur þann 21. desember síðastliðinn en þá voru þeir Lárus Welding, fyrrverandi forstjóri Glitnis, Jóhannes Baldursson, fyrrverandi framkvæmdastjóri markaðsviðskipta bankans, og Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson, fyrrverandi forstjóri Sögu Capital, dæmdir í fangelsi fyrir umboðssvik og hlutdeild í umboðssvikum.

Var Lárus dæmdur í fimm ára fangelsi, Jóhannes í tveggja ára fangelsi og Þorvaldur Lúðvík í átján mánaða fangelsi. Málið snerist um tæplega 20 milljarða króna lánveitingu sem félagið Stím fékk frá Glitni í nóvember 2007. Var lánið notað til að kaupa hlutabréf í Glitni og FL Group.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×