Viðskipti innlent

Steinar Ingi til starfa hjá SFS

Atli Ísleifsson skrifar
Steinar Ingi starfaði í sjávarútvegsráðuneytinu frá árinu 2004.
Steinar Ingi starfaði í sjávarútvegsráðuneytinu frá árinu 2004. Mynd/SFS
Steinar Ingi Matthíasson hefur verið ráðinn til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS).

Í tilkynningu frá SFS segir að Steinar Ingi muni einkum sinna verkefnum á sviði stjórn fiskveiða sem og alþjóðlegu samstarfi þar með talið fiskveiðisamningum sem og öðrum fjölbreyttum verkefnum.

„Steinar Ingi starfaði í sjávarútvegsráðuneytinu frá árinu 2004. Fyrst sem sérfræðingur en frá árinu 2007 var hann skipaður skrifstofustjóri í ráðuneytinu á skrifstofu stjórn fiskveiða og eftirlits og síðar skrifstofustjóri auðlinda- og alþjóðaskrifstofu í sameinuðu ráðuneyti sjávarútvegs- og landbúnaðar.

Frá árinu 2010 var Steinar Ingi fulltrúi sjávarútvegs- og landbúnaðaráðuneytisins við sendiráði Íslands í Brussel og síðar fulltrúi atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins.

Steinar Ingi er með BA próf í stjórnmálafræði og MS próf í umhverfis- og auðlindafræðum frá viðskipta og hagfræðideild Háskóla Íslands.

Steinar Ingi er giftur Ragnhildi Ingu Guðbjartsdóttur og eiga þau saman þrjú börn.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×