Glamour

Stal senunni í silfurkjól frá Galvan

Ritstjórn skrifar
Glæsileg að vanda.
Glæsileg að vanda. Glamour/Getty
Fyrirsætan Rosie Huntington -Whiteley lét sig ekki vanta á AMFAR galakvöldverðinn á kvikmyndahátíðinni í Cannes í gærkvöldi.  

Fyrirsætan, sem er þekkt fyrir sinn góða smekk, klæddist kjól frá merki Sólveigar Káradóttur, Galvan. Um er að ræða kjól sem er hluti af línu sem merkið gerði með Opening Ceremony og Swarovski en efri partur kjólsins er þakin litlum demöntum. Þetta er í annað sinn sem fyrirsætan klæðast kjól frá merkinu opinberlega. 

Mjög fallegt fataval hjá Rosie og Galvan heldur áfram að vekja athygli fyrir fallegan, einfaldan og smekklegan fatnað sem stjörnurnar elska. 


Tengdar fréttir

Forbes fjallar ítarlega um Galvan

Sóla Káradóttir er listrænn stjórnandi tískumerkisins Galvan en hún flýgur á milli London og Los Angeles vegna vinnunnar.

Ellie Goulding í Galvan

Hönnun Sólveigar Kára heldur áfram að slá í gegn hjá stjörnunum






×