Golf

Spieth: Sýnið Tiger þolinmæði

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Tiger og Jordan Spieth.
Tiger og Jordan Spieth. vísir/getty
Jordan Spieth hefur trú á því að Tiger Woods geti komist aftur í hóp bestu kylfinga heims. Hann segir þó að það gæti tekið tíma og að fólk verði að sýna Tiger þolinmæði.

Woods mætir á sitt fyrsta mót í 467 daga í dag. Í millitíðinni hefur hann meðal annars farið í tvær aðgerðir á baki. Eftir alla þessa fjarveru er hann kominn í sæti 898 á heimslistanum.

„Ég held að Tiger geri sér grein fyrir því að hann þurfi að vera þolinmóður. Enginn getur farið frá leiknum í eitt og hálft ár og stokkið aftur inn í sínu besta formi. Þetta mun taka tíma,“ sagði Spieth.

„Þetta er fullkomin vika fyrir hann til þess að koma til baka. Það eru fáir áhorfendur á þessu móti og hann getur spilað hratt. Hann er líka að spila með mönnum sem hann þekkir og á stað sem honum líkar vel við og þekkir líka vel.

„Vonandi gefur fólk honum tíma. Ég vona að hann taki sér tíma til að finna taktinn á nýjan leik. Hann er mjög spenntur, sjálfstraustið virðist vera í lagi og við erum margir sem vonumst eftir því að hann nái aftur að sýna sitt besta.“

Mótið með Tiger hefst klukkan 18.00 í dag og verður í beinni á Golfstöðinni.


Tengdar fréttir

Tiger íhugaði alvarlega að hætta

Tiger Woods snýr aftur á golfvöllinn í dag en það sá hann ekki endilega fyrir sér er hann lá heima hjá sér mjög þjáður eftir tvær bakaðgerðir.

Getur Tígurinn enn bitið frá sér?

Golfheimurinn gleðst í dag því nú snýr einn besti kylfingur allra tíma, Tiger Woods, loksins aftur á golfvöllinn. Biðin hefur verið löng en kylfingurinn segist ­loksins vera tilbúinn. Hann er stressaður og ­getur ekki beðið eftir því að mótið hefjist.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×