Viðskipti innlent

Spá 3,6 prósenta hagvexti á næsta ári

Samúel Karl Ólason skrifar
Vísir/Vilhelm
Alþýðusamband Íslands spáir því að hagvöxtur verði 3,6 prósent á þessu ári og því næsta. Þá telja þeir að hann verði 2,5 prósent árið 2017. Í tilkynningu frá ASÍ segir að gangi spáin eftir muni hagvöxtur á þessu ári vera með því mesta sem mælst hefur frá hruni.

„Vöxtur landsframleiðslunnar skýrist af umtalsverðum vexti innlendrar eftirspurnar, þar sem vænta má bæði vaxandi neyslu heimilanna en einnig aukinna fjárfestinga. Þannig má áætla að þjóðarútgjöld aukist að jafnaði um 4,7% á ári yfir spátímann.“

Þá segir ASÍ að fjárhagur heimilanna hafi vænkast og það komi fram í vaxandi neyslu. Hagdeild ASÍ áætlar að einkaneysla muni aukast um 3,7 prósent á þessu ári, um 3,5 prósent á því næsta og 3,2 prósent árið 2017.

„Hraður vöxtur einkaneyslunnar skýrist af hækkun launa, jákvæðri þróun á vinnumarkaði auk skulda- og skattalækkunaraðgerða stjórnvalda.“

Hagdeildin spáir einnig að fjármunamyndun verði um 20,7 prósent af vergri landframleiðslu í lok árs 2917 og verði því aftur nærri sögulegu meðaltali. Sá vöxtur er sagður skýrast að mestu af fjárfestingu atvinnuveganna og þá bæði almennri fjárfestingu og stórra verkefna í stóriðju.

„Þar má t.d. nefna kísilmálmframleiðslu. Þannig er búist við að fjárfestingar aukist árlega um 16% á árunum 2015 og 2016 en vöxturinn verði öllu hægari árið 2017 eða um 7,3%.“

Enn er fjárfesting í íbúðum sögulega lítil og aukið framboð ekki nægjanlegt til að vega upp á móti vaxandi eftirspurn. Hagdeildin spáir því að húsnæðisverð muni hækka á næstu árum. Þó hafi orðið aukning í byggingu íbúða.

ASÍ segir að töluverð óvissa sé til staðar varðandi framvindu efnahagsmála hér á landi. Þá sérstaklega varðandi þróun verðbólgu, en verðbólguhorfur eru sagðar hafa versnað undanfarin misseri.

„Sú þróun er ekki að öllu óvænt í ljósi þess hvernig innlend eftirspurn og laun hjá hinu opinbera hafa þróast og því hætta á að gengisstöðugleiki og mikil lækkun á olíuverði hafi einungis veitt skammgóðan vermi.“

Hagspá ASÍ má nálgast hér að neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×