Golf

Sögulegt afrek: Ólafía Þórunn fór á kostum og tryggði sæti sitt í LPGA-mótaröðinni

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Ólafía Þórunn slær af teig í Flórída.
Ólafía Þórunn slær af teig í Flórída. Vísir/Symetra Tour/LPGA
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, kylfingur úr GR, komst í dag inn á LPGA-mótaröðina í golfi eftir að hafa hafnað í 2. sæti á þriðja stigi úrtökumótsins í Flórída.

Er hún fyrsti íslenski kylfingurinn sem kemst inn á þessa sterkustu atvinnumannamótaröð í heimi en Ólafía hefur leikið á LET-mótaröðinni undanfarið ár, næst sterkustu mótaröð heims.

Alls tóku rúmlega 150 kylfingar þátt á úrtökumótinu en fimm hringir voru leiknir og komust aðeins sjötíu efstu kylfingarnir á lokadeginum. 

Ef það var einhvern tímann tilefni til þess að hrópa ferfalt húrra þá var það áðan í Flórída eins og sjá má í myndbandinu að neðan.

Aðeins tuttugu kylfingar fengu fullan þátttökurétt á LPGA-mótaröðinni á næsta ári en Ólafía fékk einnig þátttökurétt á Symetra-mótaröðinni, næst sterkustu mótaröð Bandaríkjanna.

Leikið var á Hills-vellinum í dag, velli sem Ólafía lenti í vandræðum með á fyrsta degi en hún byrjaði daginn vel og fékk fugl strax á annarri holu.

Lék hún stöðugt golf og var á einu höggi undir pari eftir fyrri níu holurnar með tvo fugla og einn skolla. Tveir skollar á 11. og 13. holu sendu hana niður í annað sætið en sæti hennar meðal tuttugu efstu kylfinganna var aldrei í hættu.

Fylgst var með gangi mála í Flórída í dag eins og aðra daga hér á Vísi og má sjá lýsinguna hér að neðan.


Tengdar fréttir

Tekst Ólafíu að endurskrifa íslenska golfsögu á morgun?

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, kylfingur úr GR, er aðeins átján holum frá því að endurskrifa íslensku sögubækurnar í golfi en hún á möguleika á því að verða fyrsti íslenski kylfingurinn sem kemst á PGA-mótaröðina.

Ólafía hafnaði í öðru sæti og tryggði sér þátttökurétt á LPGA

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, kylfingur úr GR, hafnaði í öðru sæti á úrtökumótinu fyrir LPGA-mótaröðinna sem lauk rétt í þessu en með því tryggði hún sér þátttökurétt á þessari sterkustu atvinnumannamótaröð kvenna í heiminum á næsta ári.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×