Viðskipti erlent

Snapchat gagnrýnt fyrir upplýsingaöflun

Samúel Karl Ólafsson skrifar
Sæta gagnrýni Evan Spiegel er einn stofnenda og framkvæmdastjóri Snapchat.
Sæta gagnrýni Evan Spiegel er einn stofnenda og framkvæmdastjóri Snapchat. Vísir/AFP
Öryggissérfræðingar hafa lengi gagnrýnt myndskilaboðaforritið Snapchat fyrir viðhorfið sem þar ríkir til öryggis persónuupplýsinga og segja það gefa notendum skakka mynd af öryggi forritsins. Hakkarar hafa komist yfir gögn frá Snapchat og fyrirtækið hefur nú bannað notendum að nýta forrit sem vistar skilaboð úr Snapchat.

Snapchat leit dagsins ljós í september 2011, en eftir erfiða byrjun hefur notendum fjölgað gífurlega hratt. Í lok ágúst síðastliðsins fór notendafjöldi forritsins yfir hundrað milljónir.

Ungt fólk hefur sérstaklega snúið sér að forritinu í miklum mæli og þá yfirgefið Facebook í leiðinni. Unglingar virðast hafa áttað sig á því að það sem sett er á samfélagsmiðla, gott eða slæmt, er þar að eilífu. Snapchat býður upp á nýjan möguleika; að senda myndir og myndbönd, sem eyðast sjálfkrafa. Þó eru uppi ásakanir um að myndirnar eyðist í raun og veru ekki.

Hakkarar nýttu sér leiðir sem höfðu verið opnaðar af öðrum forritum sem tengdust Snapchat til að stela þúsundum mynda sem sendar höfðu verið með forritinu, og birtu þær í október. Nú á dögunum bannaði fyrirtækið notendum að nota slík forrit og sagði að þeim notendum sem gera það yrði ekki leyft að nota Snapchat. Þá stálu hakkarar um 4,6 milljónum notendanafna og símanúmerum úr vefþjónum Snapchat í byrjun ársins og birtu á netinu.

Fyrr á árinu komst Snapchat að samkomulagi við stofnunina Federal Trade Commision í Bandaríkjunum. Stofnunin hafði kært fyrirtækið vegna þess að upplýsingum væri safnað um notendur Snapchat sem bryti í bága við stefnu fyrirtækisins. Sögðu þau vandann vera að auðvelt væri að vista efni sem sent er með Snapchat. Fyrirtækið þurfti hvorki að viðurkenna sök né greiða sekt, en óháðir aðilar munu vakta skilmála forritsins sem varða vernd persónuupplýsinga í tuttugu ár.

Vegna samkomulagsins endurskoðaði fyrirtækið stefnu sína og breytti henni í kjölfarið. Við breytingarnar kom í ljós að fyrirtækið safnar gífurlegum upplýsingum um notendur Snapchat. Meðal annars safnar fyrirtækið upplýsingum úr símaskrám notenda og gögnum um netnotkun þeirra.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×