Formúla 1

Smedley: Við bönnuðum þeim ekki að keppa

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Lewis Hamilton fékk þann stóra í dag, hann var kátur með það.
Lewis Hamilton fékk þann stóra í dag, hann var kátur með það. Vísir/Getty
Lewis Hamilton vann sinn annan breska kappakstur í röð og þriðja á ferlinum. Hann tók þjónustuhlé á hárréttu augnabliki. Hver sagði hvað eftir keppnina?

„Kúplingin var góð en gripið var ekki til staðar í ræsingunni. Þjónustuhléið var fullkomið, ég tók ákvörðun um að taka það á fullkomnum tímapunkti,“ sagði Hamilton.

„Ég var virkilega að reyna að ná Lewis undir lokin og svo tók hann betri ákvörðun en ég og þá átti ég ekki möguleika,“ sagði Nico Rosberg sem varð annar á Mercees bílnum. Rosberg er núna 17 stigum á eftir Hamilton í baráttunni um heimsmeistarakeppni ökumanna.

„Ég væri ekki hér ef rigningin hefði ekki komið svo það má segja að hún hafi spilað stóran þátt í okkar keppni. Ég verð að þakka liðinu fyrir frábæra ákvörðun varðandi dekk í síðasta þjónustuhléinu,“ sagði Sebastian Vettel sem náði þriðja sætinu á Ferrari bílnum.

Rob Smedley þvertók fyrir að banna ökumönnum Williams að keppa, hann vildi bara að báðir kláruðu keppnina.Vísir/getty
„Við bönnuðum þeim ekki að keppa við vildum bara ekki að þeir eyddu tímanum í að keppa við hvorn annan. Þá hefði Mercedes náð að taka fram úr fyrr. Lykilatriðið var að Valtteri þurfti að ná hreinum fram úr akstri en ekki verja tímanum í að glíma við hvorn annan,“ sagði Rob Smedley frammistöðustjóri Williams.

„Mér fannst ég hafa meiri hraða í keppninni en það er einhver ástæða fyrir því að ég mátti ekki taka fram úr. Aðal klúðrið hjá okkur var að taka þjónustuhlé einu hring of seint undir lokin. Við eigum erfitt í bleytunni. Ræsingin var ógurleg, sennilega sú besta sem ég hef átt,“ sagði Valtteri Bottas sem endaði fimmti á Williams bílnum.

„Ræsingin var ótrúleg, ég næ yfirleitt góðri ræsingu á meðal mjúku dekkjunum. Ræsingin var góð, keppnin var góð og baráttan skemmtileg. Fyrsta þjónustuhléð var of langt, það þurfti að losa aðskotahluti úr afturvængnum. Bottas hefði ekki átt að fá að fara fram úr, ég var fljótari á hörðu dekkjunum,“ sagði Felipe Massa sem lauk keppni í fjórða sæti á Williams bílnum.

„Við erum ekki yfir okkur kátir með eitt stig en við sjáum að við erum að fara í rétta átt og þær breytingar sem við erum að gera virka. Þriðja beygjan var svakaleg og afar óheppilegt að ég lenti á Jenson,“ sagði Fernando Alonso sem náði í sitt fyrsta stig á tímabilinu fyrir McLaren.

Hér fyrir neðan má sjá gagnvirkt brautarkort með öllum helstu upplýsingum.


Tengdar fréttir

Lewis Hamilton vann á heimavelli

Lewis Hamilton á Mercedes tók þjónustuhlé á ögurstundu og tryggði sér 25 stig. Liðsfélagi hans, Nico Rosberg varð annar og Sebastian Vettel á Ferrari tók þjónustuhlé á sama tíma og Hamilton og varð þriðji.

Nýr bíll Force India vekur tilhlökkun

Force India ætlar að kynna nýjan bíl þessa helgi á Silverstone brautinni í Bretlandi. Liðið er fullt tilhlökkunar samkvæmt Vijay Mallya, liðsstjóra Force India.

Lewis Hamilton á ráspól á heimavelli

Lewis Hamilton á Mercedes náði ráspól fyrir breska kappaksturinn. Nico Rosberg á Mercedes varð annar og Felipe Massa á Williams varð þriðji.

Bottas: Við höfum yfirhöndina í baráttunni við Ferrari

Lewis Hamilton nældi sér í ráspól á heimavelli á Silverstone brautinni í dag. Sinn áttunda á tímabilinu. Einungis Ayrton Senna og Michael Schumacher hafa oftar náð ráspól. Hver sagði hvað eftir tímatökuna?

Nico Rosberg átti daginn á Silverstone

Nico Rosberg á Mercedes var fljótastur á báðum æfingum dagsins. Hann rétt marði liðsfélaga sinn Lewis Hamilton á fyrri æfingunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×