Viðskipti innlent

Skotsilfur Markaðarins: Heitt undir Höskuldi og Ragna Árna ekki á útleið

RITSTJÓRN MARKAÐARINS skrifar
Tilkynnt verður um nýjan bankastjóra Landsbankans á allra næstu dögum. Björgvin Skúli Sigurðsson, framkvæmdastjóri markaðs- og viðskipta- þróunar Landsvirkjunar, er sterklega orðaður við bankastjórastólinn en hann var um þriggja ára skeið framkvæmdastjóri hjá Deutsche Bank í London.

Þar áður starfaði hann um árabil fyrir bandaríska fjárfestingabankann Lehman Brothers. Lilja Björk Einarsdóttir, sem stýrði eignaumsýslu gamla Landsbankans í London 2010-2016, er einnig sögð líkleg til að hreppa starfið. Þau Björgvin Skúli þekkjast vel en þau voru saman í námi í verkfræðideildinni í HÍ.

Heitt undir Höskuldi

Mikilvægt er að fyrirhugað útboð Arion heppnist vel, ekki síst vegna mikilla fjárhagslegra hagsmuna ríkisins, en væntingar eru um að erlendir fjárfestar muni sýna útboðinu mikinn áhuga. Þá er mikið undir hjá Höskuldi Ólafssyni, bankastjóra Arion banka, en að sögn kunnugra kunna dagar hans í starfi að vera taldir ef ekki tekst að selja stóran hlut í útboðinu. Vitað er að áhrifamestu kröfuhafar Kaupþings, sem fer með 87 prósenta hlut í Arion banka, hafa oft verið ósammála stjórnendum um stefnu bankans. Þeir hafa hins vegar haft fá úrræði til að koma óánægju sinni á framfæri. Það var ekki fyrr en í september í fyrra sem Kaupþing fékk í fyrsta sinn mann í stjórn bankans. Skömmu síðar var ákveðið að segja upp samtals 46 starfsmönnum

Ragna Árnadóttir, aðstoðarforstjóri Landsvirkjunar.
Ragna ekki að fara neitt

Sterkur orðrómur var á kreiki í kringum áramót um að Ragna Árnadóttir, aðstoðarforstjóri Landsvirkjunar, væri búin að segja starfi sínu lausu. Fylgdi sögunni að hún væri einn umsækjenda um bankastjórastöðu Landsbankans.

Þegar Markaðurinn náði tali af Rögnu í síðustu viku varð hins vegar fljótt ljóst að flökkusagan var á sandi byggð. Rögnu var skemmt en augljóst að það kom henni á óvart hversu víða sagan hafði ratað.

Skotsilfrið er óvægin innsýn inn í bakherbergi viðskipta og atvinnulífs á landinu. Pistillinn birtist í Markaðnum í Fréttablaðinu á miðvikudögum.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×