Viðskipti innlent

Skotsilfur Markaðarins: Slagur um bankastjórastól og stefna Landsbankans

Ritstjórn Markaðarins skrifar
Landsbankinn tilkynnti fyrir skemmstu að hann hefði höfðað mál vegna umdeildrar sölu bankans á hlut sínum í Borgun. Það er Ólafur Eiríksson, hæstaréttarlögmaður og einn eigenda LOGOS, sem sér um málareksturinn. Landsbankinn stefndi meðal annars Hauki Oddssyni, forstjóra Borgunar, en það er mat bankans að hann hafi leynt upplýsingum sem hann og aðrir hinna stefndu bjuggu yfir um að Borgun ætti rétt á hlutdeild í söluhagnaði Visa Europe.

Stefna bankans telur meira en þrjátíu blað- síður og ljóst að málarekstur fyrir dómstólum mun að óbreyttu taka langan tíma. Borgun gæti metið það sem svo að hagsmunum félagsins sé betur borgið með því að ná samkomulagi við Landsbankann.

Í fótspor föður síns

Viðskiptaráð Íslands réð á dögunum Leif Hreggviðsson í starf sérfræðings á hagfræðisviði ráðsins. Leifur fór þangað frá Íslandsbanka þar sem hann starfaði á markaðssviði eftir að hann lauk stúdentsprófi frá Verzlunarskóla Íslands. Segja má að Leifur hafi nú á vissan hátt fetað í fótspor föður síns, Hreggviðs Jónssonar, sem var formaður Viðskiptaráðs 2012 til 2016.

Lilja Einarsdóttir stýrði eignaumsýslu gamla Landsbankans 2010-2106.
Slást um starf bankastjóra

Greint var frá því á dögunum að 43 umsóknir hefðu borist um starf bankastjóra Landsbankans. Þótt ekki sé opinberað hverjir sóttu um hafa ýmsir verið nefndir sem líklegir umsækjendur. Þannig herma heimildir að Lilja Björk Einarsdóttir, sem stýrði eignaumsýslu slitabús Landsbankans í Bretlandi 2010-2016, sækist eftir stólnum.

Hún er stjórnarmaður í Icepharma og sat um tíma í stjórnum bresku félaganna Aurum Holdings og Hamleys. Þá hefur heyrst að Hermann Jónsson, forstjóri Íbúðalánasjóðs, sé á meðal umsækjenda auk þess sem um það er skrafað að Jón Gunnar Jónsson, forstjóri Bankasýslunnar, sækist sömuleiðis eftir starfinu. Það væri þá ekki í fyrsta sinn en hann var á meðal umsækjenda þegar Steinþór Pálsson var ráðinn bankastjóri 2010.

Skotsilfrið er óvægin innsýn inn í bakherbergi viðskipta og atvinnulífs á landinu. Pistillinn birtist í Markaðnum í Fréttablaðinu á miðvikudögum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×