Erlent

Skotárás talin vera hryðjuverk

Þórgnýr Einar Albertsson skrifar
Árásarmennirnir flúðu á þessum svarta jeppa, en þeir féllu í skotbardaga við lögreglu.
Árásarmennirnir flúðu á þessum svarta jeppa, en þeir féllu í skotbardaga við lögreglu. Nordicphotos/AFP
Alríkislögregla Bandaríkjanna tilkynnti í gær að skotárásin í Kaliforníu á miðvikudag væri rannsökuð sem hryðjuverk. Byggja rannsakendur þá ákvörðun á miklu safni sprengja og skotvopna sem árásar­mennirnir höfðu undir höndum, ferðalögum þeirra til Mið-Austurlanda og gagna sem benda til þess að annar þeirra hafi haft samband við öfgahópa í Mið-Austurlöndum.

Þau Syed Rizwan Farook og Tash­feen Malik skutu fjórtán manns til bana og særðu sautján þegar þau réðust á heilbrigðisstarfsmenn í borginni San Bernardino í Kaliforníu. Þau voru vopnuð rifflum og hálfsjálfvirkum skammbyssum. Er lögregla mætti á staðinn flúðu þau á svörtum jeppa. Lögregla fann bíl þeirra skömmu seinna og skaut þau til bana eftir skothríð.

Síðustu 335 daga hefur 351 svokölluð fjöldaskotárás, þar sem skotið er á fleiri en einn, dunið á almennum borgurum í Bandaríkjunum. Kallað hefur verið eftir nýrri byssulöggjöf í landinu í vaxandi mæli en hvergi má finna fleiri byssur á hverja hundrað borgara en í Bandaríkjunum, 113 talsins.

Í kjölfar árásarinnar hafa þingmenn og forsetaframbjóðendur Repúblikanaflokksins hvatt almenning til þess að biðja fyrir fórnarlömbum. Meðal þeirra eru Paul Ryan, forseti fulltrúadeildar þingsins, auðjöfurinn Donald Trump og öldungadeildarþingmaðurinn Ted Cruz.



Stjórnmálamenn úr röðum Demókrataflokksins hafa gagnrýnt repúblikana harðlega. Öldungadeildarþingmaðurinn Chris Murphy sagðist til dæmis fremur vilja láta verkin tala og breyta byssulöggjöfinni en að halda mínútuþagnir og biðja til guðs. Undir það tók fulltrúadeildarþingmaðurinn Adam Schiff sem sagðist hafa fengið sig fullsaddan af mínútuþögnum.

„Við erum eina þróaða ríkið á plánetunni sem gerir ekki nokkurn skapaðan hlut til að halda skotvopnum frá fólki sem ætti ekki að geta nálgast þau,“ sagði Martin O’Malley einnig í gær, en hann sækist eftir útnefningu demókrata til forsetaframboðs.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×